Verkferlar og geymsla.
CBD innihaldsefnið í Le Pharm þykkninu er unnið úr lífrænt ræktuðum iðnaðarhampi (Cannabis Sativa L). Kappkostað er að öll önnur innihaldsefni séu lífræn og unnin með vönduðum og vottuðum hætti. Framleiðandinn skartar m.a. GMP vottun (Good Manufacturing Practices). Ræktun iðnaðarhampsins er GACP (Good Agricultural and Collection Practices) vottuð og útdráttur CBD kannabínóðanna er gerður með koldíoxíð pressun án nokkurra aukaefna. Aðferðin er sú náttúrulegasta sem völ er á í CBD vinnslu. Framleiðslan er unnin undir stöðugu gæðaeftirliti ISO/IEC 17025 staðals.
Þykknið skal nota innan sex mánaða eftir opnun. Best er að geyma þykknið á köldum dimmum stað. Geymist þar sem börn ná ekki til.




