SagaPro – Fæðubótarefni
Rannsóknir benda til að SagaPro dragi úr tíðni þvagláta hjá þeim sem eru með litla eða minnkaða blöðrurýmd.
SagaPro er íslensk náttúruvara sem inniheldur handtínda íslenska hvönn. Hvönn hefur verið ein merkasta lækningajurtin í Norður-Evrópu í mörg hundruð ár. Virka efnið í vörunni er unnið úr íslensku ætihvannarlaufi og hefur hún verið rannsökuð í yfir 25 ár af vísindamönnum Saga Natura. Lauf ætihvannarinnar eini hluti plöntunnar sem hefur sýnt bein áhrif af fækkun þvagláta. SagaPro fækkar tíðum þvaglátum með því að hjálpa þvagblöðrunni fyllast betur fyrir hverja tæmingu.
Varan hefur í gegnum árin sannað virkni sína og bætt lífsgæði fjölda einstaklinga. Engar þekktar aukaverkanir.
Fækkaðu salernisferðunum
Með því að taka 1-2 töflur af SagaPro er hægt að koma í veg fyrir eða fækka salernisferðum bæði að nóttu og degi. Tíð þvaglát valda jafnan mikilli truflun á nætursvefni og finna margir mun á gæðum svefnsins eftir að inntaka hefst á SagaPro. Jafnframt hafa lífstílshópar í auknum mæli verið að taka SagaPro til að fækka salernisferðum á meðan áhugamálin eru stunduð að kappi. Þetta á við t.d. hlaupara, golfara, hjólreiða – og göngufólk.






