Það er margt í daglegu lífi sem getur komið okkur úr jafnvægi og búið til streitu í kerfunum okkar, streitan hefur síðan áhrif á líðan okkar og heilsuna almennt. Það eru til jurtir sem veita viðnám gegn streitu í kerfunum okkar og hjálpa til við að koma aftur á jafnvægi og er burnirótin (rhodiola) ein af þessum jurtum. Burnirótin er líka þekkt fyrir að auka úthald og létta lundina. Meira en 300 rannsóknir hafa verið gerðar á burnirót sem styðja þá vitneskju að hún styður vel við taugakerfið ásamt mörgum öðrum góðum eiginleikum.
- Styrkir taugakerfið
- Eykur orku og úthald
- Getur dregið úr þreytu og kulnun
- Styrkir hjarta og almenna vellíðan
- Syrkir ónæmiskerfið
- Getur dregið úr depurð og létt lundina
- Verndar vöðva vefi á meðan æfingu stendur





