Mercola lífrænt mysuprótein vanilla

10.840 kr.

Lífræna mysupróteinið frá Mercola er hreint mysuprótein sem er unnið á þannig að prótein innihaldið er í hámarki (concentrate). Það er unnið úr mjólk frá kúm sem bíta grænt gras og fá ekki sýklalyf eða hormóna.

Ekki til á lager

Mysuprótein er prótein í hæsta gæðaflokki, fæða í fullkomnu jafnvægi sem inniheldur allar amínósýrurnar, beta glúkans og ónæmisglóbúlín (heiti próteina sem hafa það sameiginlegt að vera virk mótefni) sem líkaminn þarfnast til orkumyndunar, fyrir ónæmiskerfið, fyrir viðhald vöðva og fyrir meltingu og efnaskipti.

Eiginleikar próteinsins:

  • Ein besta fæða til að mynda glútaþíon (glutathione). Glútaþíon er eitt mikilvægasta andoxunarefni líkamans sem býr í haginn fyrir hinar þrjár lykil amínósýrur sem eru sýstín (cystine), glýsín (glycine) og glútamín (glutamine).
  • Inniheldur eina ríkastu uppsprettu amínósýrunnar leucine sem er kröftug amínósýra sem ásamt fleirum myndar kvísl-keðjuna BCAAs sem kveikir á ferlinu fyrir og hjálpar til við vöðvauppbygginu líkamans.
  • Í próteininu er ríkulega af hinni hollu fitusýru CLA (Conjugated Linoleic Acid) sem stuðlar að niðurbroti fitu og er talin draga úr fitumyndun (er ekki nægjanlega rannsakað).

Í hverjum skammti eru 20 gr af próteini, 1,5 gr af imminnnoglobulin G sem styður við ónæmiskerfið og 0 gr af viðbættum sykri.

 

Ráðlögð notkun

  • Blandið 2 mæliskeiðar (skeið fylgir) í vatn, safa eða út í þeyting
  • Gott að blanda í blandara eða í hristibrúsa
  • Gott að nota fyrir eða eftir æfingar eða út í þeyting sem máltíð eða millimáltíð
Vörukarfa