Ilmkjarnaolíur hafa öldum saman verið notaðar til þess að stuðla að vellíðan og orku. Rannsóknir hafa sýnt fram á það að ilmkjarnaolíur geta stutt við líkamlegt, tilfinningalegt og andlegt jafnvægi og vellíðan.
Lavender er þekkt fyrir að vera róandi og þess vegna mikið notuð við jógaiðgun og slökun. Olían hefur öldum saman verið notuð í náttúrulegar snyrtivörur, sárasmyrsli og sem ilmvatn. Lavender er talin vera góð við exemi, sóríasis og sveppasýkingum. Einnig er hún talin vera bólgueyðandi, kláðastillandi og græðandi.



