SK Hrátt hunang + Royal jelly 450gr

5.539 kr.

Hrátt akasíublómahunang (Robinia pseudoacacia) frá Serbíu með drottningargeli – næringarríku fæðunni sem býflugurnar framleiða handa drottningunni og lirfum búsins. Milda akasíuhunangið ber drottningargelið vel og útkoman er mjúk sæta með ferskum, örlítið beiskum keim. Hunangið er ógerilsneytt, kaldunnið og aðeins grófsigtað – þannig varðveitast náttúruleg ensím, frjókorn, própólis og bývax í sínu upprunalega formi.

Lagerstaða: Á lager

Vörunúmer: seið-1734 Flokkar: , ,

Helstu eiginleikar:

• Hrátt, ógerilsneytt og kaldunnið
• 0,5% drottningargel (royal jelly)
• Milt akasíubragð – helst fljótandi lengi
• Enginn viðbættur sykur, síróp eða aukaefni
• 100% náttúrulegt

Akasíublómahunang 99,5%, drottningargel 0,5%. Næringargildi (fyrir 100g) • Orka: 1292 kJ / 308,8 kcal • Fita: <0,01 g (þar af mettuð 0 g) • kolvetni: 80,3 g (þar af sykur 80 g) • Prótein: 0,3 g • Salt: <0,01 g
Ein teskeið á dag beint af skeiðinni eða út í te, skyr og hafragraut. Geymist við stofuhita, fjarri beinu sólarljósi. Varúð: Ekki gefa börnum yngri en 12 mánaða. Hunangið er grófsigtað og getur því innihaldið snefilagnir af frjóum, própólis og bývaxi. Þeir sem eru með ofnæmi fyrir býflugnaafurðum, frjókornum eða astma ættu að fara varlega með drottningargel.
Vörukarfa