Primavera Hydrating Face Toner 100ml

5.539 kr.

Andlitsvatnið frá PRIMAVERA inniheldur jurtasamsetningu sem varðveitir rakastig húðarinnar til lengri tíma. Það styrkir efsta lag húðarinnar og eykur ljóma,  þökk sé hágæða ávaxtaþykkni. Ilmurinn er mildur og andlitsvatnið er fyrir venjulega og þurra húð.

Lagerstaða: Á lager

- +
Vörunúmer: 274006 Flokkar: , , , ,

Með hreinum krafti jurta veitir andlitsvatnið (Face Toner) frískandi tilfinningu og ilm, um leið og það verndar náttúrulegan varnarhjúp húðarinnar. Það tónar húðina varlega og nærir hana með hreinni blöndu jurtaefna – lífrænum sólberjafræjum og lífrænum appelsínublómum – sem gefur húðinni ljóma og dregur fram náttúrulegan ljóma. Náttúrulegur raki vörunnar veitir húðinni  ferskleika og lætur húðina líða frábærlega.

Primavera byggir á heildrænni nálgun á heilsu og fegurð, fyrirtækið hefur 35 ára sérfræðiþekkingu og reynslu af plöntum, ilmmeðferðum og lífrænni húðumhirðu. Primavera framleiðir eingöngu hreinar og lífrænar náttúrlegar vörur. Primavera stundar eingöngu sanngjarna viðskiptahætti, með virðingu á fólki og jörðinni okkar að leiðarljósi.

Flest innihaldsefni úr lífrænni ræktun, hreinar náttúrulegar ilmkjarnaolíur. Innihaldsefni: Vatn, pentýlen glýkól, lífrænt sólberjavatn*, lífrænt appelsínublómavatn*, glýserín, alkóhól, frúktólígósakkaríð, 100% hreinar ilmkjarnaolíur, sykurrófuþykkni, lífrænt granateplaþykkni*, mjólkursýra, arginín, pólýglýserýl-4 kaprat, kalíumlaktat, natríumanísat, natríumlevúlínat, linalól**, límonen**, sítral** * Lífrænt = Vottað lífrænt ** Náttúruleg innihaldsefni í 100% hreinum ilmkjarnaolíum
Spreyið á hreina, þurra húð í andliti og leyfið húðinni að taka andlitsvatnið vel upp. Má einnig spreyja yfir farða.
Vörukarfa