Nettulauf eru góð uppspretta kalsíums og annarra steinefna og eru talin góð til að halda nýrunum heilbrigðum og til að styrkja beinin. Þau eru líka rík af mörgum vítamínum, eins og c-vítamíni, sem er öflugt hjálpartæki fyrir ónæmiskerfið. Nettulauf innihalda einnig a-vítamín, sem er nauðsynlegt vítamín, m.a. fyrir augun. Nettlulauf eru góð uppspretta af linólensýru, quercetini, járni, magnesium og potassíum.
Jurtir notaðar til heilsubótar hafa fylgt mannkyninu frá örófi alda og vonandi geymist sú viska áfram í manna minnum. Frá fornu fari hefur fólk í Síberíu, og um heim allan, safnað saman laufum, stilkum og blómum í skógum og ökrum til að nota til alþýðulækninga. Á sumrin bundu grasalæknar og búendur saman jurtir og nytjaplöntur og þurrkuðu. Töfrandi gufur stigu úr pottum og búin voru til seyði og ýmsar styrkjandi veigar, og áburðir með græðandi eiginleika, allt til heilsubótar fyrir konur, karla og börn.





