Hugmyndafræði Primavera byggir á heildrænni nálgun á heilsu og fegurð, fyrirtækið hefur 35 ára sérfræðiþekkingu og reynslu af plöntum, ilmmeðferðum og lífrænni húðumhirðu. Primavera framleiðir eingöngu hreinar og lífrænar náttúrlegar vörur. Primavera stundar eingöngu sanngjarna viðskiptahætti, með virðingu á fólki og jörðinni okkar að leiðarljósi.
Primavera Hydrating Face Toner 100ml
5.539 kr.
Andlitsvatnið frá PRIMAVERA inniheldur jurtasamsetningu sem varðveitir rakastig húðarinnar til lengri tíma litið. Það styrkir efsta lag húðarinnar og eykur ljóma , þökk sé hágæða ávaxtaþykkni. Ilmurinn er mildur og andlitsvatnið er fyrir venjulega og þurra húð.
Lagerstaða: Á lager
Flest innihaldsefni úr lífrænni ræktun, hreinar náttúrulegar ilmkjarnaolíur.
Innihaldsefni:
Vatn, pentýlen glýkól, lífrænt sólberjavatn*, lífrænt appelsínublómavatn*, glýserín, alkóhól, frúktólígósakkaríð, 100% hreinar ilmkjarnaolíur, sykurrófuþykkni, lífrænt granateplaþykkni*, mjólkursýra, arginín, pólýglýserýl-4 kaprat, kalíumlaktat, natríumanísat, natríumlevúlínat, linalól**, límonen**, sítral**
* Lífrænt = Vottað lífrænt
** Náttúruleg innihaldsefni í 100% hreinum ilmkjarnaolíum
Spreyið á hreina, þurra húð í andliti og leyfið húðinni að taka andlitsvatnið vel upp. Má einnig spreyja yfir farða.





