QOTT Organic virgin Castor oil 500ml

7.584 kr.

Þessi lífræna kaldpressaða fjölnota olía er notuð bæði til fegrunar og heilsubótar. Olían er frábær húðolía því hún fer djúpt inn og er mjög rakagefandi, hún er góð næring fyrir augnhár og augabrúnir, góð næring í hárið, hún hreinsar vel farða og er einnig góð burðarolía fyrir kjarnaolíur og aðrar olíur. Sjá nánar í vörulýsingu

Lagerstaða: Á lager

- +

Í aldaraðir hefur laxerolía verið viðurkennd sem heilsubótar- og fegrunarolía um allan heim vegna næringarríkra eiginleika og fjölvirkni.

Olían er rík af e vítamíni, omega fitusýrum og jurtaefnum sem næra húðina vel, hún inniheldur líka fitusýru sem kallast rísínólsýra sem rannsóknir sýna að dregur úr bólgum.

Olían hefur einnig mólkúl þyngd sem gerir henni mögulegt að komast í gegnum ysta lag húðarinnar inní miðlag hennar þar sem æða- og sogæðakerfið er. Einnig er olían sérstaklega góð burðarolía fyrir kjarnaolíur.

Laxerolía var áður fyrr notuð sem örvandi hægðarlyf, lífræna olían frá Queen of the Thrones er food-grade en er framleidd  sérstaklega til að nota útvortis með bökstrum/vafningum til heilsubótar  og svo er hún frábær olía fyrir húðina, djúpnærir og gefur ljóma.

Kaldpressuð lífræn laxerolía, 500 ml.
Laxerolíu er hægt að nota frá toppi til táar sem “allt í einni” sjálfsumönnunar olíu sem býr yfir mörgum eiginleikum, hún er:
  • Rakagefandi og mýkjandi fyrir húð, hár, neglur, augnhár og augabrúnir.
  • Góð andlits- og farðahreinsi olía.
  • Róandi nuddolía.
  • Góður grunnur fyrir andlits- og hár maska, húðhreinsiskrúbba, nagla og naglabandameðferðir og margt fleira.
  • Djúpvirkandi sem bakstur á lifur, skjaldkirtil, kviðarhol og fl.
  • Góð með þurrburstun og djúpnuddi (fascial rolling).
Vörukarfa