Ræktað og pakkað í Gautavík, 766 Djúpavogi.
Á býlinu Gautavík fer fjölbreytt starfsemi fram, m.a. inni- og útiræktun á iðnaðarhampi frá 2019.
Við notum eingöngu frætegundina Finola í teið okkar sem eru af plöntutegundinni Cannabis Sativa.
Fræin eru á sáðvörulista Evrópusambandsins og vottuð til að innihalda 3-5% CBD en innan við 0,2% THC – sem er snefilmagn.
Við ræktunina voru engin eiturefni eða kemísk áburðarefni notuð, eingöngu húsdýraáburður og rigningarvatn.
Við handtínum blómin og laufin næst þeim af hampplöntunum, þurrkum þau í sérstökum þurrkgrindum og svo netapokum við ákveðið hita- og rakastig, handmölum og handpökkum í vandaða „ziplock“ poka í vottuðu framleiðslurými.
Við þurrkunina rýrna þau um ríflega 90% í þyngd og þegar möluð verður grófa efnið eftir í sigtinu, þ.m.t. fræin sem sum blómin voru byrjuð að mynda í lok uppskerutímans því þau innihalda kannabínóða aðeins í snefilmagni og viljum við þau því ekki hafa þau með í teinu.




