Í Ayurvedafræðunum er ashwagandha algeng jurt sem er gefin við svo mörgu vegna þess að hún er einstaklega heilsueflandi á margan hátt og vegna þess hún styrkir mótstöðuafl líkamans gegn streitu. Hún er talin geta komið jafnvægi á starfsemi líffæra og líkamskerfa, hún hjálpar til við að draga úr bæði innri og ytri streituvöldum sem og að auka virkni ónæmiskerfisins, byggja upp orku og bæta minni. Streita hefur áhrif á okkur á margan hátt, bæði líkamlega og huglægt, allt frá því að trufla svefninn og auka á skapsveiflur, skerða minni, auka bólgur í líkamanum, draga úr orku almennt og einnig kynorku, ásamt fleiru.
Ashwagandha jurtin er talin auka kynorku hjá konum, frjósemi bæði karla og kvenna og bæta testósterón framleiðslu hjá körlum.
Lífrænu Ashwagandha droparnir eru unnir úr rótinni á sérstakan mjúkan hátt sem þykkni og sem gerir þá mjög virka. Droparnir eru lífrænir, án glúteins, án soja og eru óerfðabreyttir.




