Miðlungslangar fitusýrukveðjur (MCT olía) eru þekktar fyrir þá eiginleika að hjálpa líkamanum að framleiða ketóna, en framleiðsla ketóna er mikilvægt fyrir þá sem kjósa keto matarræði. Þar er sú kenning þekkt að þegar líkaminn framleiðir ketóna þá notar hann fitu, sem er þá tekin inn í miklu magni sem aðal eldsneyti í staðin fyrir kolvetni til að ganga á fituforða líkamans.
ATH.: Gott er að vita að líkaminn býr til sína eigin ketóna. Ketónar eru vatnsleysanleg mólikúl sem verða til í lifrinni undir eðlilegum kringumstæðum, lifrin býr þá til ketóna úr fitusýrum í líkamanum þegar líkaminn framleiðir ekki nægjanlegt insúlín til að umbreyta glúkósa í orku.
Mitomix keto Mct olían hefur marga góða kosti, líka fyrir þá sem fylgja ekki ströngu keto matarræði. Hún getur:
- Virkað sem orkugjafi.
- Virkað sem næring fyrir heila og hugarstarfsemi.
- Haft góð áhrif á meltinguna.
- Hugsanlega styrkt ónæmiskerfið og efnaskiptin.
- Rannsóknir hafa sýnt að olían getur hugsanlega haft góð áhrif á Alzheimers sjúkdóminn.
- Gefið fyllingu í maga sem leiðir til seddu tilfinningar.
- Stutt við staðfast ketó mataræðis plan.
Olían er unnin úr lífrænni kókos olíu og inniheldur mest af C8 Caprylic Acid og C10 Capric Acid með örlitlu af C12 Lauric Acid.





