CB Raw Kakao duft gerjað með kókossy 250

4.824 kr.

Hrákakóduftið inniheldur kókosblómasykur og er frá býlum á Vestur-Bali sem eru sjálfbær og vinna samkvæmt „Permaculture“ ræktun, en það er búskaparaðferð sem leitast við að vinna með náttúrunni í stað þess að vinna á móti henni. „Permaculture“ fellur undir vísindalega nálgun alþjóðlegra félagslegra hreyfinga, iðkunar og matvælakerfis sem kallast landbúnaðarvistfræði. 

Lagerstaða: Á lager

- +
Vörunúmer: kakao - z 250 Flokkar: , , ,

Súkkulaðiduft sem er búið til úr dýrindis hrákakói og inniheldur kókosblómasykur frá Balí. Kókosblómasykur hefur marga kosti fram yfir venjulegan hreinsaðan sykur, hann er t.d. ríkur af steinefnum eins og sinki, magnesíum og járni!

Hrákakó er ríkt af steinefnum og jurtaefnum eins og:
  • magnesíum
  • sinki
  • flavoníðum
  • járni
  • Inniheldur teóbrómín, forvera hamingjuhormónsins serótóníns
  • Mjög góður trefjagjafi (100g kakóduft inniheldur yfir 100% af daglegri þörf)
  • Tilvalið sem valkostur í staðinn fyrir kaffi
Notið 1 til 2 tsk í bolla með 65° heitu vatni eða í heita mjólk að eigin vali.
Vörukarfa