Á meðan hreinsun stendur:
- Margskonar fæða og ýmsar jurtir styðja við náttúrulegar varnir líkamans gegn skaðlegum lífverum, til dæmis gerjuð fæða (súrkál og fl.), gulrætur, ananas, graskersfræ, hvítlaukur, laukur, sólblómafræ, kókos og kókosolía, hrátt hunang, villt ber, papaya ávöxturinn og papayafræin, og túrmerik. Best er að hafa fæðuna sem hreinasta og lífræna eins og kostur er. Verið viss um að fá nóg af heilnæmum og hollum mat, hollum fitum og olíum og plöntu próteini.
- Borðið litlar máltíðir yfir daginn til að syðja við meltinguna. Til að halda líkamanum basískum er gott að borða fjölbreytt úrval ávaxta, berja og grænmetis, skolið öll matvæli vel.
- Forðist kjöt og aðrar dýraafurðir, allar hráar dýraafurðir, og mikið unnin matvæli.
- Forðist sykraðan mat, sykur og sykraða drykki því sykurinn nærir skaðlegar lífverur.




