Methylcobalamín er það form af B12 sem best er að líta eftir í bætiefnahillunum. Varast ber þá gerð sem er framleidd á rannsóknarstofum, cyanocobalamin, en hún nýtist líkamanum illa. Gott er að neyta B12 í vökvaformi eða sem munnsogstöflur, þar sem B12 frásogast að hluta til í munni.
Hlutverk B12 í líkamanum:
- Nauðsynlegt fyrir myndun erfðaefnisins, DNA og RNA.
- Einn af grundvallarþáttum heilbrigðs taugakerfis.
- Þáttur í heilbrigði beinfruma.
- Vinnur með fólínsýru við myndun rauðra blóðkorna.
- Nauðsynlegt fyrir eðlilega meltingu á kolvetnum og fitu.
- Hjálpar til við nýtingu á járni.
- Vinnur gegn frjósemisvandamálum kvenna.
- Mikilvægt fyrir framleiðslu á hormónum nýrnahettnanna (kortisól, aldósterón, adrenalíni og noradrenalíni).
- Gegnir mikilvægu hlutverki í framleiðslu melatóníns og þar af leiðandi fyrir góðan nætursvefn.
- Getur bætt minni og athygli




