Flestar frumur í líkamanum bera í sér mörghundruð hvatbera, sem má líkja við litlar orkuverksmiðjur sem sjá líkamanum fyrir mest öllu eldsneyti og orku sem líkaminn framleiðir. Hins vegar hefur þessi orkuframleiðsla í för með sér að ýmsar hliðarafurðir myndast sem geta haft skemmandi áhrif á DNA frumanna og geta þannig flýtt öldrun líkamans.
CoQ10 og Ubiquinol, einfaldað form C0Q10, eru einstök andoxunarefni sem eru talin vernda gegn frumuskemmdum sem þessum, m.a. í fituhimnu frumanna, ver gegn skemmdum frumuhvata og tryggir líkamanum nægjanlega orku fyrir heilbrigði hjarta, heila, vöðva, nýrna og annarra orkuþurfandi líffæra. Yngra fólk hefur tilhneigingu til að nýta CoQ10 sem líkaminn framleiðir mjög vel en eftir þrítugt (30) er mælt með inntöku á Ubiquinol sem líkaminn á auðvelt með að nýta sér, en þegar meltingin hægist og upptaka er ekki góð er mælt með Lipsomal CoQ10
Liposomal CoQ10 er mjög auðmeltanleg blanda án allra gervi-og aukaefna sem getur hjálpað til við að:
- Auka orku og úthald.
- Vernda frumuhvatana gegn oxun.
- Auka heilbrigði heila, hjarta og æðakerfis.
- Að draga úr öldrunarferlinu.
- Styðja við ónæmis- og taugakerfi líkamans.
- Styðja við að halda C0Q10 í jafnvægi fyrir þá sem þurfa að taka inn kólesteról lækkandi lyf.





