Mercola lífrænt Ginkgo Biloba

4.609 kr.

Ginkgo biloba (musteristré eða lífsins tré) er eitt að elstu lifandi trjátegundum á jörðinni og eru flest ginkgo biloba fæðubótarefnin unnin sem extract úr blöðum trésins. Ginkgo biloba hefur reynst mörgum vel sem þjást af migreni og er mikilvægt fyrir virkni að það sé tekið af staðaldri. Ginkgo er talið geta aukið blóðflæði og hjartaheilsu og hugsanlega dregið úr elliglöpum, bætt minni og hugarstarfsemi.

Ekki er ráðlegt að taka of stóra skammta af Ginkoo vegna áhrifa þess á blóðflæði og einnig ber að hafa samráð við lækni vega hugsanlegra samverkana með öðrum lyfjum.

 

 

Lagerstaða: Á lager

- +

Ginkgo biloba inniheldur mikið magn af flavoníðum sem hafa kröftuga andoxunareiginleika, og terpenóíða sem hafa þá eiginleika að geta víkkað út æðar og eru taldir geta komið í veg fyrir að blóðflögur klístrist saman. Ginkgo biloba eykur blóðflæði til heila og getur hugsanlega dregið úr depurð og vægu þunglyndi. Ginkgo er talið geta haft góð áhrif á augnheilsu og getur hugsanlega dregið úr fyrirtíðarsspennu.

Mercola notar coffee fruit extract (berin af kaffiplöntunni) í blönduna með ginkgo biloba. Ávöxturinn inniheldur mikið magn af pólýfenólum sem örvar ákveðinn taugavaxtarþátt í heilanum (neurotrophic factor (BDNF) sem kemst í gegnum heilatálmann (blood brain barrier) og nær þannig til heilafrumanna.

Berin af kaffiplöntunni innihalda örlítið koffín, en miðað við kaffibaunina sjálfa er það agnarlítið. Í 1 gr af coffee fruit  extract eru 4,4 mg af koffíni, en í meðalstórum kaffibolla eru um 100-150 mg af koffíni.

Lífræna ginkgo biloba extract/coffee fruit extract blandan er talin geta:

  • Viðhaldið heilbrigði heila-og taugafruma.
  • Stutt við þjálni heila og taugakerfis til.
  • Eflt vöxt nýrra fruma og taugatengsla í taugakerfinu.
  • Stutt við hugastafsemi og minni.

Ekki er talið ráðlegt að taka of stóra skammta af Ginkoo vegna áhrifa þess á blóðflæði og einnig ber að hafa samráð við lækni vega hugsanlegra samverkana með öðrum lyfjum.

 

Fullorðnir, 1 khylki á dag.
Vörukarfa