Móðir náttúra gefur okkur stórkostlegar gjafir, meðal þeirra gjafa er Shilajit. Shilajit er kvoðukenndur lífefnamassi, einhverskonar tjara sem inniheldur rafhlaðnar öreindir. Kvoða þessi, sem vætlar sem úr sprungum kletta í fjöllum í mikilli hæð yfir sjávarmáli, er steingerður lífmassi, talinn afar næringarríkur, sem verður til úr ævafornu lífríki trjáa og plantna, í sumum tilvikum einnig úr gömlum sjávarbotni.
Shilajit myndast við ákveðnar jarðfræðilegar aðstæður og hitastigs skilyrði þegar plöntu jarðvegurinn pressast saman á milli jarðfleka sem síðan nuddast saman í aldanna rás en þetta ferli er talið standa yfir í árþúsundir, jafnvel milljónir ára.
Megin uppistaða Shilajit eru steinefni, 65% og ýmis önnur margslungin plöntuefna samsetning er 20-35%. Steinefnin eru 85 talsins og eru í jónísku formi, sem gerir upptöku þeirra mjög góða, m.a. magnesíum, kalsíum, fosfór, selen og járn ásamt um 60 málmsöltum og örverum. Í Shilajit er einnig fjölbreytt úrval af vítamínum, svo sem a, e, b1, b3, b6, b12, og c ásamt fleirum, ein-og fjölómettaðar fitusýrur og nauðsynlegar og ómissandi amínósýrur.
Það eru margir sem telja Shilajit vera allra meina bót og fjölmargar rannsóknir og reynsla aldanna draga ekki úr þeirri trú. Það er nánast ógerlegt að fjalla um Shilajit í stuttu máli og hér er stiklað á stóru.
- Shilajit er talið hafa verndandi áhrif á frumur heilans og er m.a. talið koma jafnvægi á magn taugaboðefnisins GABA sem miðlar skilaboðum á milli heila og taugakerfis, þegar þetta taugaboðefni er í hæfilegu magni í heilanum sendir það boð um og er talið auka almenna vellíðan.
- Er talið viðhalda jafnvægi á hormóna kerfi kvenna á öllum aldri. Er talið virka vel við fyrirtíðarspennu og er talið geta dregið úr einkennum breytingarskeiðsins.
- Shilajit er talið hafa góða virkni til styrktar blöðruhálskirtli karla, og er talið viðhalda jafnvægi á hormónakerfi þeirra.
- Shilajit er talið hjálpa til við niðurbrot á fitu og kolvetnum.
- Er talið auka heilbrigði þvagfærakerfis karla og kvenna.
- Vegna næringareiginleika Shilajits er það talið geta viðhaldið almennu hreysti, vera góð vörn gegn flensum og kvefi.
- Shilajit inniheldur fulvic og humic sýrur, en þær eru taldar gagnlegar til að draga úr bólgum.




