Örvandi og nærandi hárolía sem nærir hársekkina, styrkir hárið og viðheldur heilbrigðum hársverði. Bættu útlit hársins með þessari einföldu en samt öflugu formúlu með virka innihaldsefni rósmaríns til að örva hársekki og E-vítamín sem er öflugt andoxunarefni til að styrkja og næra hársvörðinn.
Hvað gera innihaldsefnin fyrir þig?
Rósmarín ilmkjarnaolía: Inniheldur andoxunarefni og er samandragandi, hefur örvandi áhrif á hársekkinn og stuðlar þannig að endurnýjun. Hún inniheldur einnig carnosic sýru sem ýtir undir endurnýjun frumna og betra blóðflæði. Ilmurinn er upplífgandi og hefur líka góð áhrif á minnið!
Sæt möndluolía: Þessi próteinríka olía er stútfull af B-vítamíni m.a. B3 og B9, svo sannarlega góð næring til að þykkja, styrkja og styðja við góðan hárvöxt. Möndluolían er rakagefandi og frábær meðferð við þurrki í hársverði.
Sólblómaolía: Ein af mest róandi og verndandi olíum sem völ er á, róar hársvörð og dregur úr bólgum og bætir þannig heilbrigði hársvarðarins. Sólblómaolían inniheldur mikið af E-vítamíni sem nærir og hjálpar til við að örva endurnýjun ásamt því að gefa hárinu fallegan gljáa.
E-vítamín: Öflugt andoxunarefni sem bætir mýkt og áferð hársins og hjálpar til við að minnka líkur á því að hárið brotni og skemmist.





