Nærandi og rakagefandi nuddolía sem er rík af nauðsynlegum fitusýrum, oleic og linoleic acid, og er þekkt fyrir að smjúga vel inn í húðina og næra hana án þess að skilja eftir fituga áferð. Ein besta olían til að nota á húð í geislameðferð.
Aprikósukjarna olíu er hægt að nota eina sér sem húðolíu og nuddolíu eða blanda með öðrum grunnolíum og ilmkjarnaolíum. Mjög góð til að gefa raka í húð, og má nota í hármaska. Vegna þess hve olían er létt og smýgur vel inn í húðina er tilvalið að nota hana í andlitsnudd til að gefa góða næringu.Hún hentar líka vel til að hreinsa húðina.
Aprikósukjarna olía blandast vel með öðrum grunnolíum t.d Avocado olíu og ilmkjarnaolíum sem henta vel í húðumhirðu s.s. Frankincense, Lavender, Geranium, Sandalvið og Rós.





