Hrein kaldpressuð marulafræjaolía. Fyrir allar húðgerðir. Marula olían gefur léttan raka.
Marulafræjaolía hvað er nú það? Hefurðu ekki heyrt um Marulafræjaolíuna? OMG! Hvar hefur þú eignlega verið? Hún er rík af próteinum og af omega fitusýrum, létt og húðin drekkur hana auðveldlega í sig. Marula olían virkar eins og undur fyrir þurra húð, klofna hárenda, á þurr naglabönd, við húðsliti og örum og er meiraðsegja fínasta smurolía fyrir hurðar sem ískrar í, í alvöru talað, starfsfólk Acure hefur sannreynt þetta sjálft með hurðarnar og olían virkar mjög vel til að stöðva ískurhljóð.
Marulafræjaolían er náttúruleg, hrein og lífræn og umbúðirnar eru vistvænar.
Í Acure vörurnar fer bara það besta.
Acure nota engin skaðleg efni í snyrtivörurnar sínar og meirihluti innihaldsefna eru vottuð lífræn. Allar vörur frá Acure eru vegan og án parabenefna, jarðolíu, formaldehýðs og súlfats. Þær eru án míkróplastefna, vaselíns og formalíns og eru framleiddar án þess að notast sé við hliðarafurðir úr dýrum og eru „Cruelty Free“ sem þýðir að þær eru framleiddar án grimmdar gagnvart dýrum og að þau stunda ekki tilraunir á dýrum.








