Hreinsiklútar með extrakt úr rós og gúrku. Fyrir allar húðgerðir.
Verið gullin og guðdómleg á ferðinni með kókós hreinsiklútunum úr Seriously Soothing línunni. Hreinsiklútarnir fjarlægja blíðlega farða, óhreinindi, svita og eiturefni úr umhverfinu af andlitunum OG sinnep af munnvikunum. Þannig sleppið þið við allt vatnssull og skol þegar tíminn er dýrmætur á ferð og flugi.
Acure vörurnar eru unnar úr jurtum og náttúrulegri fæðu, innihaldsefnin eru lífræn, kjarnaolíurnar eru hreinar og umbúðirnar eru vistvænar. Í vörurnar fer bara það besta.
Acure nota engin skaðleg efni í snyrtivörurnar sínar og meirihluti innihaldsefna eru vottuð lífræn. Allar vörur frá Acure eru vegan og án parabenefna, jarðolíu, formaldehýðs og súlfats. Þær eru án míkróplastefna, vaselíns og formalíns og eru framleiddar án þess að notast sé við hliðarafurðir úr dýrum og eru „Cruelty Free“ sem þýðir að þær eru framleiddar án grimmdar gagnvart dýrum og að þau stunda ekki tilraunir á dýrum.






