Mjólkurþistilsolían frá Siberian Treasure er hágæða kaldpressuð og olía frá Síberíu sem unnin er úr mjólkurþistli. Olían er hjálpleg til við að losa líkamann við sindurefni (e. free radicals), eiturefni og þungmálma. Hún er notuð til að auka getu lifrarinnar til endurnýjunar og endurheimtar og auka getu hennar til að vinna úr erfiðum efnum, ásamt því að hvetja lifrina til gallframleiðslu sem hjálpar til við að melta fitu betur.
Mjólkurþistilsolía
Formúla styrks og fegurðar
Mjólkurþistill (e. Silymarin) er einn af demöntunum í geislandi kórónu jurta frá Síberíu. Hann er einstaklega heilandi í formi kaldpressaðrar olíu. Mjólkurþistilsolían frá Siberian Treasure er fyrstu pressu olía frá Altai fjöllunum.
Mjólkurþistill hefur verið þekktur sem lækningajurt langt aftur í tímann. Forn Grikkir notuðu mjólkurþistil, einnig Arabar á miðöldum og heilarar og grasalæknar hinna ýmissa þjóða og ættbálka notuðu mjólkurþistilinn öld eftir öld; þurrkaðann, soðinn, malaðann, og búin voru til alls konar brugg og te úr honum sem hjálpuðu fólki að ná aftur styrk og að styrkja varnirnar gegn sjúkdómum.
Hægt er að nota svo gott sem alla jurtina (blóm, blöð, fræ og rót) til lækninga en mjólkurþistilsolían er einstaklega virk og gjöful. Hún er ljós græn/gul á litinn og mild á bragðið. Hún er fengin með því að pressa fræ mjólkurþistilsins. Mjólkurþistilsolían hefur jákvæð áhrif á allan líkamann, sérstaklega lifrina, enda er heilnæmi mjólkurþistilsins fyrir lifrina vel þekkt.
Sagan segir að heilög María sjálf hafi sýnt veikum manni mjólkurþistilinn í draumi og sagt honum frá undursamlegum lækningaeiginleikum þessarar oddhvössu jurtar, en svo vildi til að hann þekkti nú þegar þessa jurt vel í sjón, því hann gekk daglega framhjá mjólkurþistli þegar hann gekk til kirkju þar sem hann bað fyrir heilun og lækningu.
Mjólkurþistillinn er í hávegum hafður í Síberíu. Víða sjást breiður af fjólubláum mjólkurþistilsblómum sveiflast í ferskra andvaranum.
Síberíska náttúruan hefur skrifað stórkostlegar formúlur styrktar og fegurðar og jöfnur æsku og heilsu í mjólkurþistilsolíuna.
Mannslíkaminn verður stöðugt fyrir skaðlegum áhrifum útfrá mat, eiturefnum, alkahóli og ýmsum öðrum þáttum í umhverfinu. Þetta allt hefur áhrif á náttúrulega filterinn eða síuna okkar, lifrina. Fólk hefur notað mjólkurþistil frá aldaöðli til að styðja þetta mikilvæga líffæri og hjálpa því að vinna úr vandamálum og skaðlegum efnasamböndum. Mjólkurþistilsolían hefur verið þekkt fyrir að virka undravel til að styðja við lifrina, heilsu hennar og starfssemi. Plantan var notuð á tímum forn Egypta og Grikkja og mjólkurþistillinn var fyrst nefndur í fræðiritum frægra lækna og fræðamanna á borð við Galenus og Díóskorídes.
Silybum marianum er af körfublómaætt og kallast mjólkurþistill eða maríuþistill á íslensku. Hann er frá miðjarðahafslöndunum, Suður Evrópu, Norður Afríku og Vestur Afríku en hefur borist víðar og vex núorðið líka sums staðar í Ástralíu, Norður- og Suður Ameríku og víða í Evrópu.
Mjólkurþistilsolían frá Siberian Treasure er búin til úr mjólkurþistli sem vex í suðurhluta Vestur Síberíu, í hjarta meginlands Evrópu og Asíu. Lykilvirka efnið í mjólkurþistli kallast silymarin og er það öflugt andoxunarefni. Mjólkurþistilsolían inniheldur yfir 350 gagnleg steinefni, vítamín og snefilefni á borð við zink, kopar, joð, króm, kalk, magnesíum, járn, A, B, E, K, D, omega 3 og góðar fitusýrur.
Kostir Mjólkurþistilsolíu
Fræ, blóm, rætur og stilkar mjólkurþistils eru notuð við framleiðslu ýmissa lyfja og bætiefna og til að útbúa te og tinktúrur, en mjólkurþistilsolían er talin eitt gagnlegasta formið til að taka inn mjólkurþistil.
Mjólkurþistilsolían býr yfir getu til að örva framleiðslu glútaþíons (e. glutathione) í líkamanum og koma jafnvægi á glútaþíon gildin í líkamanum. Glútaþíón er stutt keðja þriggja amínósýra sem hjálpa til við að losa sindurefni (e. free radicals), eiturefni og þungmálma úr líkamanum. Glutaþíon er áhrifaríkt meðal við efnaeitrun og geislamengun.
Mjólkurþistils olía inniheldur líka flavanólignana sem eru lífvirk náttúruleg efnasambönd (silidíanín, silicristín og silybin) – efnasambönd sem hafa bein áhrif á getu lifrarinnar til endurnýjunar og endurheimtar og eykur mótstöðu lifrarinnar þegar hún er að vinna úr erfiðum efnum. Þessi efnasambönd hvetja lifrina til að framleiða og seyta galli sem brýtur niður fitu í meltingunni.
Einstök samsetning mjólkurþistilsolíu gerir það að verkum að gagnsemi hennar fyrir lifrina undraverð.
Alltaf er best að vera í samráði við lækni eða hjúkrunarfræðing, fá rannsóknir og eftirfylgni og vera í samtali um inntöku á bætiefnum og mögulegum víxlverkunum við lyf ásamt því að ræða skammtastærðir í inntöku á bætiefnum eins og mjólkurþistilsolíu.

