Hinir mörgu kostir NAC – Eins mikilvægasta bætiefnis sem þú hefur líklega aldrei heyrt um

Íslensk þýðing á greiningu Dr. Mercola á NAC sem birt var á heimasíðu hans
þann 7. desember 2023 sjá hér

Sagan í hnotskurn:

N-acetýl-sýstein (NAC) eykur framleiðslu glútaþíons, mikilvægs andoxunarefnis sem hjálpar til við að draga úr skaða af völdum sindurefna og gegnir hlutverki í afeitrun þungmálma og annarra skaðlegra efna.

Í bráðalækningum er NAC notað sem móteitur við parasetamól-eitrun af völdum ofskömmtunar. Dauðsföll af völdum parasetamól-eitrunar eru að mestu fyrirbyggjanleg þegar NAC er gefið tímanlega.

Algengasta notkun NAC er til stuðnings við lifrarstarfsemi, en einnig hafa rannsóknir á efninu sem meðferð við taugahrörnunarsjúkdómum á borð við Parkinsons, lofað afar góðu.

NAC hefur einnig vakið athygli í rannsóknum á geðrænum kvillum, þar á meðal áfallastreituröskun (PTSD), þunglyndi og vímuefnavanda, og virðist einnig geta haft jákvæð áhrif á frjósemi hjá bæði körlum og konum.

NAC er yfirleitt ekki mjög dýrt og hefur verið fáanlegt á markaði í langan tíma. Flestir þola bætiefnið vel og það hefur engar þekktar aukaverkanir.
N-asetýlsýstein (NAC) hjálpar líkamanum að mynda glútaþíon, og er afar áhugavert og gagnlegt efni sem margir þekkja lítið til. Mikið af mögulegum kostum þess tengist því að það getur aukið framleiðslu glútaþíons, mikilvægs andoxunarefnis sem líkaminn framleiðir sjálfur. Glútaþíon hjálpar til við að draga úr frumuskemmdum af völdum sindurefna og gegnir einnig hlutverki í afeitrunarferlum líkamans, meðal annars gagnvart ákveðnum þungmálmum og öðrum skaðlegum efnum.

NAC er tiltölulega ódýrt og hefur verið notað í langan tíma. Fólk þolir það almennt vel og það hefur engar þekktar aukaverkanir. Í ljósi þess hversu fjölbreytt lífeðlisfræðileg áhrif NAC eru, gæti það haft ávinning fyrir marga.
Eins og segir í læknisfræðileg yfirliti um fjölbreytta klíníska notkun NAC:

„… NAC er mögulegur kostur til meðferðar á sjúkdómum sem eiga það sameiginlegt að myndast vegna framleiðslu sindurefna (e. free oxygen radicals). Rannsóknir hafa ekki sýnt fram á nein skaðleg áhrif meðferðarinnar á móður eða fóstur þegar kemur að þunguðum konum … NAC dregur úr stýrðum frumudauða eða sjálfdrepi (e. apoptosis) og erfðaefnis eitrunaráhrifum með því að auka magn glútaþíons innan frumnanna og styðja við hvatbera himnuna (e. mitochondria). “

NAC getur hjálpað til við að draga úr eituráhrifum áfengis

NAC sem fæðubótarefni getur einnig hjálpað til við að undirbúa líkamann áður en áfengis er neytt og þannig mögulega dregið úr þeim skaðlegu áhrifum sem tengjast áfengisneyslu — eitthvað sem getur verið gagnlegt að hafa í huga þegar hátíðir nálgast. NAC er form af amínósýrunni sýsteini og auk þess að stuðla að aukinni myndun glútaþíons getur það einnig dregið úr eituráhrifum asetaldehýðs, efnis sem tengist mörgum einkennum þynnku eða timburmanna.

Að taka NAC, að minnsta kosti 200 mg, um 30 mínútum áður en áfengis er neytt, kann að hjálpa til við að draga úr eituráhrifum áfengisins. Talið er að NAC geti virkað enn betur samhliða B1-vítamíni (þíamíni eða benfotamíni). B6-vítamín gæti einnig hjálpað til við að draga úr einkennum þynnku.

Þar sem áfengi getur gengið á birgðir líkamans af B-vítamínum, og B-vítamín eru mikilvæg fyrir efnaskipti og niðurbrot áfengis í líkamanum, getur verið gagnlegt að taka B-vítamín fyrir áfengisneyslu og aftur daginn eftir. Þrátt fyrir þetta er mikilvægt að hafa í huga að slík aðferð dregur ekki úr hættunni á áfengiseitrun eða öðrum bráðum og alvarlegum afleiðingum ofdrykkju. Því er mikilvægt að sýna aðgát og neyta áfengis í hófi.

NAC er öflugt móteitur við eituráhrifum parasetamóls

NAC er einnig notað í læknisfræði sem móteitur við parasetamól-eitrun. Líkt og áfengi getur parasetamól valdið lifrarskaða meðal annars með því að ganga á birgðir líkamans af glútaþíoni. Ef glútaþíonmagninu er haldið nægilega háu má að verulegu leyti draga úr þeim skaða sem parasetamól getur valdið. Þetta er ástæðan fyrir því að einstaklingar sem hafa tekið of stóran skammt af Tylenol fá stóra skammta af NAC á bráðamóttöku — til að auka glútaþíon.

Sýnt hefur verið fram á að dánartíðni vegna parasetamól-eitrunar geti orðið nánast engin þegar NAC er gefið fljótt eftir ofskömmtun. Þótt að Dr. Mercola mæli almennt ekki með notkun lyfja sem innihalda parasetamól við vægum verkjum og óþægindum, geta slík lyf stundum verið nauðsynleg til að bæla tímabundið mikla verki, til dæmis eftir skurðaðgerð. Ef þú notar parasetamól mælir hann því eindregið með því að taka NAC samhliða.

Ef þú átt börn og geymir parasetamól á heimilinu mælir hann einnig með því að hafa NAC tiltækt ef ofskömmtun skyldi eiga sér stað fyrir slysni. Til að ná sem bestum árangri ætti NAC-meðferð að hefjast innan átta klukkustunda frá bráðri ofskömmtun. Ef grunur leikur á ofskömmtun skal leita læknisaðstoðar tafarlaust. Ef ekki er möguleiki á að nálgast læknisaðstoð mælir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) með eftirfarandi meðferð:

„Gjöf NAC um munn er ákjósanleg nema vandkvæði séu fyrir hendi, til dæmis hætta á ásvelgingu eða viðvarandi uppköst. Venjulegur ráðlagður upphafsskammtur er 140 mg/kg, og fjórum klukkustundum síðar er gefinn 70 mg/kg viðhaldsskammtur um munn á fjögurra klukkustunda fresti.
Algengt hefur verið að mæla með því að þessari skömmtun sé haldið áfram í 72 klukkustundir. Nýleg klínísk reynsla styður þó að lengd meðferðar sé aðlöguð að ástandi sjúklingsins.“

NAC veitir mikilvægan stuðning við lifrina

Algengasta notkun NAC er almennt til stuðnings við lifrarstarfsemi. Í rannsókn frá árinu 2010 var bent á að andoxunarefnið resveratról hefði reynst geta aukið fjölgun lifrarbólgu C veirunnar og væri því ekki heppilegt fæðubótarefni fyrir einstaklinga með lifrarbólgu C. Rannsóknin bendir til þess að NAC gæti verið betri valkostur við lifrarbólgu C og öðrum langvinnum lifrarsjúkdómum.

Höfundar rannsóknarinnar skrifa:
„Við komumst ítrekað að því að [NAC] hefur áhrif á tjáningu iNOS [iNOS er örvanlegt afbrigði ensímsins nituroxíðsyntasa, NOS, sem tekur þátt í myndun nituroxíðs] í lifrarfrumum manna sem örvaðar hafa verið með bólguhvetjandi boðefnum.“

Þeir halda áfram:
„Áhrifin verða með því að hindra virkjun iNOS-stýrisvæðisins og tengjast breytingum á virkni NF-κB, sem er mikilvægur umritunarþáttur við örvun iNOS-tjáningar. Þetta líffræðilega ferli gæti vel legið að baki meðferðaráhrifum NAC við langvinnum lifrarsjúkdómum öðrum en þeim sem stafa af parasetamól-eitrun.“

Aðrir heilsufarslegir ávinningar NAC

Fyrir utan lifrarverndandi áhrif NAC benda rannsóknir til þess að það geti einnig hjálpað til við að:
Koma í veg fyrir versnun langvinnrar lungnateppu (COPD).
Bæta vöðvaafköst og vöðvastarfsemi.
Hjálpa til við að koma í veg fyrir nýrnaskaða af völdum skuggaefna sem notuð eru við ákveðnar myndgreiningarrannsóknir.
Vernda gegn Alzheimers þegar NAC er tekið samhliða alfa-lípósýru.
Draga úr alvarleika inflúensu þegar notkun hefst áður en sýking á sér stað.
Draga úr einkennum tengdum sáraristilbólgu (ulcerative colitis).
Hjálpa við meðferð lungnatrefjunar (pulmonary fibrosis).
Hjálpa til við að fyrirbyggja eða draga úr einkennum astma.
Bæta frjósemi karla með því að bæta gæði sæðis og hjálpa við meðferð ófrjósemi hjá konum með fjölblöðrueggjastokkaheilkenni (PCOS) sem svara ekki klómífeni. Einnig hefur verið sýnt fram á mögulega minnkun á hættu á fyrirburafæðingu og fósturláti.
Hjálpa við meðferð ákveðinna tegunda krabbameins og draga úr eituráhrifum geislameðferðar. Í sumum rannsóknum hefur komið fram að NAC geti verndað gegn DNA-skemmdum.
Athugið: Sumar vísbendingar benda til þess að NAC geti haft óæskileg áhrif samhliða ákveðnum tegundum krabbameinslyfjameðferðar. Því ætti ekki að nota NAC sem viðbót við krabbameinsmeðferð nema í samráði við lækni.
Draga úr tíðni, lengd og alvarleika einkenna langvinnrar berkjubólgu.
Bæta einkenni tengd Parkinsons og ALS.
Hjálpa við meðferð HIV-sýkingar.
Draga úr bólgu í vefjum.
Draga úr hættu á insúlínviðnámi.
Draga úr einkennum tengdum geðklofa.
Hjálpa til við að draga úr ávanabindandi og áráttukenndri hegðun, svo sem lotuáti, vímuefnafíkn — sérstaklega kókaínfíkn — og annarri áráttuhegðun eins og naglabiti, meðal annars með áhrifum á taugaboðefnið glútamat.
Hjálpa til við að draga úr einkennum þunglyndis, geðhvarfasýki og áráttu- og þráhyggjuröskunar (OCD) og bæta daglega virkni hjá fólki með þessa kvilla.
Bæta þarmaþröskuldinn og þannig mögulega draga úr hættu á auknu gegndræpi þarma, svokölluðum „leka þörmum“.
Styðja við endurnýjun beina og hraða steinefnamyndun beina.
Bæta svefn og draga úr hrotum hjá einstaklingum með kæfisvefn vegna teppu.
Hjálpa við meðferð fjölblöðrueggjastokkaheilkennis (PCOS).
Auka mögulega lífslíkur sjúklinga með langvinna hjartabilun.
Auka mögulega lífslíkur eftir hjartaáfall.
Draga úr hættu á hjarta- og æðasjúkdómum.
Styðja við bata eftir heilaskaða.
Hjálpa við meðferð Helicobacter pylori-sýkingar þegar NAC er notað samhliða annarri meðferð.
Vernda gegn heyrnarskerðingu af völdum gentamýsíns hjá sjúklingum í nýrnadíalýsu.
NAC gefur von fyrir sjúklinga með Parkinsons og aðra taugahrörnunarsjúkdóma

Eins og sjá má er listinn yfir mögulega notkun NAC mjög langur. Til eru jafnvel vísbendingar um að efnið geti gagnast gegn unglingabólum og dregið úr bóluköstum um allt að helming. Eitt af því sem þykir þó hvað mest spennandi er möguleg taugaverndandi verkun þess. Vísindamenn rannsaka nú NAC sem mögulega meðferð við Parkinsons, sjúkdómi sem hefur verið tengdur við skort á glútaþíoni í substantia nigra, heilasvæði þar sem dópamínframleiðandi taugafrumur eru staðsettar.

Rannsóknir á heilavef látinna einstaklinga benda til þess að hjá fólki með Parkinsons sé magn glútaþíons á þessu heilasvæði afar lágt, stundum varla mælanlegt. Þessi skortur virðist þó ekki bundinn við Parkinsons.
Síðari rannsóknir hafa leitt í ljós glútaþíonskort í substantia nigra þegar kemur að fleiri taugahrörnunarsjúkdómum, þar á meðal progressive supranuclear palsy (PSP), multiple system atrophy (MSA) og Alzheimers. Í grein hjá Science of Parkinson’s kemur meðal annars fram:

„Rannsakendur hafa komist að því að lækkað glútaþíonmagn leiðir ekki beinlínis til taps á dópamín magni í frumum … en það gerir frumurnar viðkvæmari fyrir skaðlegum efnum, svo sem taugaeiturefnum. Þetta hefur orðið til þess að rannsakendur hafa spurt hvort gjöf glútaþíons til einstaklinga með Parkinsons gæti hægt á framgangi sjúkdómsins.“
Í einni lítilli klínískri rannsókn voru gefin 600 mg af glútaþíoni í æð tvisvar á dag í 30 daga, en síðan var fylgst með sjúklingunum í allt að fjóra mánuði. Allir þáttakendur sýndu marktækan bata og skor á kvarða um skerta færni (e. disability index) lækkaði að meðaltali um 42%. Áhrifin héldust í tvo til fjóra mánuði eftir að meðferð lauk.

Aðrar rannsóknir hafa einnig bent til mögulegs gagns NAC við Parkinsons.
Sem dæmi má nefna rannsókn á 23 sjúklingum sem valdir voru af handahófi þar sem notuð var samsetning af 600 mg NAC um munn tvisvar á dag og vikulegri NAC-gjöf í æð, 50 mg á hvert kíló líkamsþyngdar. Rannsakendur greindu taugaverndandi áhrif og framfarir í bæði andlegri og líkamlegri færni. Myndgreining á heila benti einnig til breytinga sem samræmdust jákvæðum áhrifum meðferðarinnar.

Áfallastreituröskun, þunglyndi og meðferð við fíkn

Annað svið þar sem NAC hefur vakið áhuga er við meðferð geðrænna kvilla, þar á meðal áfallastreituröskunar (PTSD) og þunglyndis- og vímuefnavanda. Í einni rannsókn minnkuðu einkenni áfallastreitu hjá fyrrverandi hermönnum um 46%, löngun í vímuefni minnkaði um 81% og þunglyndiseinkenni minnkuðu um 48% eftir meðferð með NAC.

Þátttakendur tóku 2.400 mg af NAC daglega í átta vikur.
Í lok rannsóknarinnar uppfyllti hópurinn í heild ekki lengur greiningarskilyrði fyrir áfallastreituröskun. Aðalhöfundur rannsóknarinnar, Sudie Back, Ph.D., sagði að þetta væri einhver besti árangur sem sést hefði í rannsóknum á lyfjameðferð við þessu vandamáli.
Medical University of South Carolina (MUSC) lýsti niðurstöðunum meðal annars þannig:

„Sem stendur eru ekki til vel rannsakaðar lyfjameðferðir fyrir sjúklinga sem glíma samtímis við áfallastreitu og vímuefnavanda. Þótt sértækir serótónín-endurupptökuhemlar, SSRI-lyf, hafi verið samþykkt til meðferðar við áfallastreitu hafa lyfjameðferðir við samhliða kvillum ekki reynst eins árangursríkar og vonast var til.

Grunnrannsóknir hafa sýnt að magn glútamatflutningspróteina í heilanum minnkar við vímuefnavanda og að NAC geti hjálpað til við að endurheimta þessi gildi og minnka hættu á bakslagi í dýralíkönum.
Þar sem vísbendingar eru um að vímuefnavandi og áfallastreita deili að hluta sömu taugalíffræðilegu ferlum, var sett fram sú tilgáta að NAC samhliða sálfræðimeðferð gæti verið ný nálgun við meðferð þessara samhliða vandamála.“

Í rannsóknum á NAC við geðhvarfaþunglyndi tóku þátttakendur 1 gramm af NAC tvisvar á dag í tvo mánuði. Þunglyndisskor þeirra lækkaði um átta stig og þeir greindu frá betri virkni og lífsgæðum.
NAC hefur einnig sýnt mögulega gagnsemi hjá fólki með meðferðarþolið þunglyndi og, að einhverju leyti, við alvarlegt þunglyndi.
Hafa þarf þó í huga að NAC getur hugsanlega haft milliverkanir við ákveðin þunglyndislyf og aukið áhrif þeirra. Því er mikilvægt að ræða við lækni áður en NAC er tekið samhliða slíkum lyfjum, þar sem stundum gæti þurft að breyta lyfjaskammti.

NAC gæti bætt frjósemi hjá bæði körlum og konum

Síðasta sviðið sem hér verður fjallað um er frjósemi, þar sem ófrjósemi hjá bæði körlum og konum hefur aukist. Fjöldi rannsókna hefur bent til mögulegra áhrifa NAC á frjósemi hjá báðum kynjum. Eins og áður hefur komið fram hefur NAC verið tengt við bætt gæði sæðis hjá körlum.
Einnig hefur verið sýnt fram á aukna tíðni eggloss hjá konum, í einni rannsókn um 52%. Þar tóku konurnar 1.200 mg af NAC daglega í fimm daga, frá og með þriðja degi tíðahringsins. Þykkt legslímhúðar jókst einnig marktækt.

Aðrar rannsóknir benda til þess að NAC geti bætt gæði eggfrumna, sem gæti aukið líkur á náttúrulegri þungun og mögulega einnig árangur glasafrjóvgunar. NAC hefur jafnframt verið tengt við lægri tíðni fósturláta og aukna tíðni þungunar hjá konum sem hafa orðið fyrir endurteknum fósturlátum.

Legslímuflakk (endometriosis), sem er algeng orsök ófrjósemi hjá konum, hefur einnig verið rannsakað í tengslum við NAC.
Í einni ítalskri rannsókn tóku konur 600 mg af NAC þrisvar á dag í þrjá daga samfleytt í hverri viku í þrjá mánuði. Bati var það mikill hjá hluta þátttakenda að 24 af 47 konum í meðferðarhópnum gátu hætt við fyrirhugaða skurðaðgerð.
Hjá átta af 47 konum í NAC-hópnum hurfu blöðrur að fullu. Til samanburðar gat aðeins ein af 45 konum í samanburðarhópnum hætt við aðgerð og hjá fjórum hurfu blöðrur.

Almennar leiðbeiningar um skammta og öryggi

NAC er víða fáanlegt sem fæðubótarefni til inntöku og er tiltölulega ódýrt. Frásog þess um meltingarveg er þó fremur takmarkað. Samkvæmt sumum rannsóknum er lífaðgengi NAC við inntöku aðeins um 4–10%. Helmingunartími þess er einnig um það bil tvær klukkustundir, sem skýrir hvers vegna þátttakendur í rannsóknum taka það oft tvisvar eða þrisvar á dag.

Vegna takmarkaðs lífaðgengis eru stundum notaðir skammtar allt að 1.800 mg á dag. Ekki hefur verið skilgreindur einn ákveðinn hámarksöruggur skammtur fyrir almenna notkun. NAC þolist þó almennt vel, en sumir geta fengið aukaverkanir frá meltingarvegi, svo sem:
ógleði
niðurgang
hægðatregðu

Í upprunalega textanum er einnig tekið fram að þar sem NAC auki glútaþíon, sem tekur þátt í afeitrunarferlum líkamans, geti of stór byrjunarskammtur valdið svokölluðum „afeitrunareinkennum“. Því er þar lagt til að byrja á minni skammti, til dæmis 400–600 mg einu sinni á dag, og auka hann síðan smám saman. Ef þú tekur þunglyndislyf eða ert í krabbameinsmeðferð er sérstaklega mikilvægt að ræða notkun NAC við lækni, þar sem það getur haft áhrif á ákveðin lyf og sumar krabbameinsmeðferðir.

Ef slíkt kemur fram getur verið ráðlegt að minnka skammtinn. Einnig getur inntaka með mat dregið úr líkum á óþægindum frá meltingarvegi.

Vörukarfa