Frankincense (Boswellia serrata)
Frankincense er talin róandi og er reynast vel við kvíða og oföndun. Hún getur hugsanlega haft góð áhrif gegn astma, einnig er Frankincense talin hafa bólgueyðandi áhrif.
Olían er unnin með gufueimingu úr kvoðu Boswellia trésins og tónninn er grunntónn.
Frankincense blandast vel með Benzoin, Sandalvið, Lavender, Myrru, Furu, Appelsínu, Rós, Bergamot og Sítrónu.
í Egyptalandi til forna var Frankincense mikið notuð í ilmvötn, andlitskrem og maska. Einnig var hún verðmæt sem gjaldmiðill og er þekkt sem ein af Biblíu olíunum. Frankincense hefur verið mikið notuð bæði sem olía og reykelsi við tilbeiðslu og hugleiðslu vegna þeirra eiginleika sinna að geta hægt á öndun og framkalla hugarró.



