Ginkgo biloba inniheldur mikið magn af flavoníðum sem hafa kröftuga andoxunareiginleika, og terpenóíða sem hafa þá eiginleika að geta víkkað út æðar og eru taldir geta komið í veg fyrir að blóðflögur klístrist saman. Ginkgo biloba eykur blóðflæði til heila og getur hugsanlega dregið úr depurð og vægu þunglyndi. Ginkgo er talið geta haft góð áhrif á augnheilsu og getur hugsanlega dregið úr fyrirtíðarsspennu.
Mercola notar coffee fruit extract (berin af kaffiplöntunni) í blönduna með ginkgo biloba. Ávöxturinn inniheldur mikið magn af pólýfenólum sem örvar ákveðinn taugavaxtarþátt í heilanum (neurotrophic factor (BDNF) sem kemst í gegnum heilatálmann (blood brain barrier) og nær þannig til heilafrumanna.
Berin af kaffiplöntunni innihalda örlítið koffín, en miðað við kaffibaunina sjálfa er það agnarlítið. Í 1 gr af coffee fruit extract eru 4,4 mg af koffíni, en í meðalstórum kaffibolla eru um 100-150 mg af koffíni.
Lífræna ginkgo biloba extract/coffee fruit extract blandan er talin geta:
- Viðhaldið heilbrigði heila-og taugafruma.
- Stutt við þjálni heila og taugakerfis til.
- Eflt vöxt nýrra fruma og taugatengsla í taugakerfinu.
- Stutt við hugastafsemi og minni.
Ekki er talið ráðlegt að taka of stóra skammta af Ginkoo vegna áhrifa þess á blóðflæði og einnig ber að hafa samráð við lækni vega hugsanlegra samverkana með öðrum lyfjum.



