Energy – Fæðubótarefni
Energy er sérstaklega samsett vítamínblanda til að skerpa athygli og gefa aukna orku.
Energy getur:
- Dregið úr þreytu
- Dregið úr streitu
- Bætt einbeitingu
Fyrir hverja?
- Íþróttafólk fyrir æfingu
- Námsmenn
- Konur á breytingaskeiði
- Þá sem þurfa aukna orku fyrir daglegt amstur
Blandan inniheldur burnirót, L-theanín, 105 mg koffín m.a. úr guarana fræjum ásamt B-vítamín blöndu (B5, B6 og B12 vítamín). Burnirót og L-theanín eru jurtir sem eru taldar auka einbeitingu. Burnirót er einnig talin vera góð til að vinna gegn síþreytu og orkuleysi. Koffín getur dregið úr þreytu og örvað taugakerfið.
Burnirót á sér langa sögu sem lækningajurt eða aftur til ársins 77 e.Kr. og stuðlar hún að almennri vellíðan og jafnvægi í líkamanum. Rótin virðist virka vel meðal annars gegn stressi, einbeitingarskorti og getur stuðlað að bættum árangri fólks í íþróttum. Koffín er örvandi efni sem finnst í náttúrunni, til dæmis í kaffi, tei, kakó og súkkulaði. Gæta þarf þess að neyta koffíns í hóflegu magni og eru þau 105 mg af koffíni sem Energy inniheldur, vel undir hóflegum mörkum.
L-theanín er rannsakað bætiefni sem stuðlar að auknu jafnvægi, sér í lagi með samhliða inntöku koffíns.







