Magnesíum og Kalk eru grundvallar næringarefni sem þurfa að vera í jafnvægi í líkamanum.
Magnesíum og Kalk eru eins og tvær hliðar á sama pening. Kalk örvar taugarnar, á meðan magnesíum hefur taugaslakandi áhrif. Kalk er nauðsynlegt fyrir vöðvaspennu en magnesíum fyrir vöðvaslökun. Kalk gerir beinin hörð og sterk en magnesíum sér til þess að þau verði ekki stökk og brothætt. Kalk er nauðsynlegt til blóðstorknunar, en magnesíum heldur blóðinu flæðandi óhindrað í æðakerfi líkamans.
Þessi blanda er sett saman með það í huga að veita líkamanum helstu næringarefni í hagstæðum hlutföllum sem taka þátt í að byggja upp og viðhalda heilbrigðum og sterkum beinum.





