- Pure Synergy notar eingöngu óerfðabreytt vottuð lífræn innihaldsefni í bætiefni sín. Fyrirtækið skuldbindur sig að nota eingöngu innihaldsefni úr hreinum matvælum sem eru ræktuð án þess að nota kemísk efni eins og skordýraeitur og tilbúinn áburð. Fyrirtækið notar ekki fylliefni, skaðleg leysiefni né rotvarnarefni í vörur sínar.
- Fyrirtækið blandar saman visku aldanna um læknigarmátt plantna, ásamt öllu því sem nútíma vísindi bjóða uppá varðandi úrvinnslu og varðveislu næringarefna.
- Vörurnar eru undir ströngu eftirliti fyrir þungmálmum, örverum og öðrum óæskilegum efnum til að tryggja öryggi og virkni vítamína, steinefna og annarra virkra efna. Flest næringarefnin eru dregin úr plöntum sem þykkni sem magnar upp eiginleika þeirra. Efnin eru síðan þurrkuð á þann hátt sem tryggir næringargildi þeirra og þeim pakkað í lofttæmdar umbúðir til geymslu.
- Pure Synergy er með strangar kröfur varðandi innihaldsefni og vinnur með virtum ISO-viðurkenndum rannsóknarstofum með sérþekkingu á plöntum.
PS Zinc Complex 60hylki
5.390 kr.
Zinc Complex™ inniheldur gerjað sink og c vítamínrík acerola kirsuber með lífrænum shiitake sveppum og og næringarríkum spírum. Sínk er ómissandi steinefni fyrir ótalmargt í líkamskerfum okkar, meðal annars fyrir ónæmiskerfið, fyrir heilbrigði meltingarfæra, blöðruhálskirtil karla, fyrir húðina og ótalmargt fleira. Gerjað sink í fæðuformi er milt í maga og stuðlar að góðri upptöku.
Lagerstaða: Á lager
Ráðlögð notkun: 1 hylki á dag, með eða án matar.







