Medis EMF Protect 60hylki

6.492 kr.

Medis EMF Protection er sérstök formúla sem er þróuð til að styðja við náttúrulegar varnir líkamans gegn oxunarálagi og þreytu sem tengist áhrifum frá rafsegulgeislun. Í nútíma umhverfi getur rafsegulgeislun verið heilsufarsleg áhætta fyrir marga, og sumir eru viðkvæmari en aðrir. Blandan sameinar steinefni úr sjó, andoxunarríka þörunga og plöntuþykkni sem hjálpa til við að styrkja frumur, bæta orku og úthald. Formúlan er þróuð með Medis Technology, tækni sem varðveitir næringargildi og lífvirkni innihaldsefna.

Lagerstaða: Á lager

- +

Þarar eru náttúruleg uppspretta joðs og styðja við jafnvægi í skjaldkirtli og efnaskiptum, hvortveggja mikilvægir þættir til að viðhalda lífsþrótti og til að verjast gegn geislun og oxunarálagi. Þari inniheldur einnig fúkóídan, fjölsykra sem finnst í brúnum þörungum og er þekkt fyrir andoxunareiginleika og fyrir bólgueyðandi og ónæmisstyrkjandi eiginleika. Fúkóídan hjálpar til við að vernda frumur gegn oxunarskemmdum, styður við afeitrun þungmálma og stuðlar að heilbrigðri endurnýjun frumna, allt nauðsynlegt fyrir vernd gegn geislun og öðrum umhverfismengandi þáttum.

NETLU ÞYKKNI (Urtica dioica)

Netla er rík af járni, magnesíum og kísil, steinefni sem eru góð fyrir heilbrigt blóð, orku og endurnýjun frumna. Pólýfenól og flavonoidar í netlu eru bólgueyðandi og andoxundi, styðja blóðrásina og getu líkamans til að útrýma uppsöfnuðum eiturefnum, þar á meðal þungmálmum.

SPIRÚLÍNA (Arthrospira platensis)

Blágrænn örþörungur, fullur af blaðgrænu, próteini og nauðsynlegum amínósýrum. Spirúlína styður við jafnvægi ónæmiskerfisins, súrefnismettun og afeitrun. Hún er rík af phycocyanin og superoxide dismutase (SOD), kröftugum andoxunarefnunum sem líkaminn framleiðir einnig sjálfur, og hjálpa til við að vernda frumur og DNA gegn oxunarálagi af völdum rafsegultruflana.

GERJUÐ KLÓRELLA (blágrænn örþörungur)

Gerjun eykur meltanleika og aðgengi klórellunnar. Þessi örþörungur binst þungmálmum og umhverfiseiturefnum og styður við afeitrunarferli líkamans. Klórófyll og kjarnsýrur þess stuðla að viðgerð frumna, en andoxunarefnin hjálpa til við að hlutleysa sindurefna og styrkja ónæmiskerfið.

Þari (Fucus vesiculosus), brenninetluþykkni (Urtica dioica), spirulina (Arthrospira platensis), gerjuð chlorella (blágrænar örþörungar).
Ráðlögð notkun: 1 hylki á dag, best 30 mínútum fyrir mat.
Vörukarfa