OC 12pokar Cool Mint

1.850 kr.

Ekki til á lager

Vörunúmer: 8003298 Flokkar: , Merkimiðar: ,

Cool Mint – 12 píramídalaga tepokar

Ertu hrifin/n af myntu?

Cool Mint er einstaklega bragðgott jurtate, gert samkvæmt klassískri uppskrift Østerlandsk 1889 Copenhagen. Í blöndunni eru eingöngu vönduð hráefni: sítrónugras, piparmynta, lakkrísrót og eplabitar.

Bragð

Sætt og frískandi te með ríkulegum keim af piparmyntu og lakkrís. Bragðið er kröftugt og verður enn dýpra eftir því sem teið fær að standa lengur.

Þegar löngunin í eitthvað sætt gerir vart við sig er tilvalið að fá sér bolla af Cool Mint.

Uppáhelling

Setjið einn tepoka í bolla og hellið 100°C heitu vatni yfir. Látið teið standa í 8–10 mínútur. Teið má standa lengur fyrir sterkara og bragðmeira te.

Cool Mint er einnig einstaklega gott sem íste á heitum sumardögum.

Umbúðir

Í öskjunni eru 12 píramídalaga tepokar. Tepokarnir eru gerðir úr PLA, jurtabundnu og lífbrjótanlegu efni.

Vörukarfa