AA Castor oil 100 ml

2.190 kr.

Castor olía, eða laxerolía á íslensku, er ótrúlega nytsamleg olía sem er hægt að nota til að bæta heilsuna á marga vegu. 

Ekki til á lager

Vörunúmer: aa-2212100 Flokkar: , , , ,

Olían er kaldpressuð úr baunum af lágvöxnum runnum sem koma upphaflega frá Afríku en í dag fer ræktunin að mestu fram á Indlandi. Olían var t.d. notuð í Egyptalandi til forna fyrst sem lampaolía og síðar í  lækningaskyni og sem fegrunarolía. Kleópatra trúði því að olían myndi gera hvítuna í augunum enn hvítari og hjá Rómverjum var hún m.a. notuð til að vinna á brúnum blettum í húð.  Í dag er olían mikið notuð m.a.í framleiðslu á ýmsum matvörutegundum, í snyrtivörur, sápur og sleipiefni.

Inniheldur: Ricinus Communis, kaldpressuð laxerolía. Inniheldur ekki hexane. Geymist þar sem börn ná ekki til. Geymist fjarri sólarljósi.
Gott er að setja bakstur með olíunni á kviðinn við hægðatregðu, krömpum og verkjum, eins er hún góð fyrir bakstra á önnur svæði líkamans. Setja má laxerolíu í blöndu með öðrum olíum til að nudda á stífa og auma liði og vöðva.  Laxerolía þykir góð til að næra húð og hár og má nudda á augnhár og augabrúnir fyrir aukinn vöxt og næringu. Einnig getur laxerolía hjálpað til við að lýsa dökka bletti í húð, s.s. lifrarbletti og aldurstengda bletti.  Mjög gott er að nota laxerolíu í andlits- og hármaska þar sem að hún heldur rakanum inni.
Vörukarfa