Primavera Relaxing Body Cream Fluid

5.539 kr.

Þrátt fyrir létta áferð nærir PRIMAVERA líkamsáburðurinn húðina ákaflega vel, það er mjög rakagefandi, róar og er með flauelsmjúkum, hlýjum ilmi.

Lagerstaða: Á lager

- +
Vörunúmer: 265103 Flokkar: , , , , ,

Í þessum róandi líkamsáburði er jurtablanda með lífrænu lavendervatni, lífrænni apríkósukjarnaolíu, lífrænni kamellíufræolíu, lífrænni jojobaolíu, lífrænu cupuaçu smjöri og kendi olíu. Líkamskremið frásogast hratt, vinnur gegn stífleika og mýkir húðina. Flauelsmjúkur, hlýr ilmur úr lífrænum lavender og lífrænni vanillu hefur róandi áhrif.

Hugmyndafræði Primavera byggir á heildrænni nálgun á heilsu og fegurð, fyrirtækið hefur 35 ára sérfræðiþekkingu og reynslu af plöntum, ilmmeðferðum og lífrænni húðumhirðu. Primavera framleiðir eingöngu hreinar og lífrænar náttúrlegar vörur. Primavera stundar eingöngu sanngjarna viðskiptahætti, með virðingu  fyrir fólki og jörðinni okkar að leiðarljósi.

Innihaldsefni Vatn, lífrænt lavendervatn*, lífrænt límónuvatn*, lífræn kókosfita*, C15-C19 alkanar***, lífræn apríkósukjarnaolía*, pólýglýserýl-3 pólýrísínólat, glýserín, pentýlen glýkól, kukui hnetuolía, ísóamýl kókoat, lífræn kamellíufræolía*, hrísgrjónaduft, lífræn jojobaolía*, lífrænt cupuacu smjör*, sinksúlfat, jojobaesterar, magnesíumsterat, 100% hreinar ilmkjarnaolíur: lífræn lavender ilmkjarnaolía*, lífrænt vanilluþykkni*, rósmarínlaufþykkni, magnoliuþykkni, ricinusolía, sólblómaolía, sólblómafrævax, mímósuvax, náttúrulegt E-vítamín, arginín, lesitín, glýserýl óleat, glýserínesterar, glýserýl stearat sítrat, levúlínsýra, natríumlevúlínat, pólýglýserín-3, linalól**, sítrónellól**, geraníól**, bensýl bensóat**, límonen**, Eugenól**, sítral** * lífrænt = vottað lífrænt ** náttúruleg innihaldsefni, 100% hreinar ilmkjarnaolíur *** jurtabundið
Berið á líkamann eftir sturtu eða bað og nuddið mjúklega inn í húðina. Gott fyrir allar húðgerðir.
Vörukarfa