Hafþyrnisber eru mjög rík af karótíni og eru líka mjög kalkrík og innihalda mikið magn af vel nýtanlegu c vítamíni.
ST Sea Buckthorn Powder freeze-dried
3.109 kr.
Hafþyrnisber innihalda 190 líffræðilega virk næringarefni og 20 steinefni. Berin eru mikið notuð í jurtaveigar, snyrtivörur og lyf. Þau eru talin bæta meltinguna, styrkja hjarta, lifur og augu, og eru mjög rakagefandi fyrir húðina.
Lagerstaða: Á lager
100% náttúrulegt og hreint frostþurrkað hafþyrnisberjaduft úr berjum frá villtum skógi í Siberíu. Þau innihalda engan viðbættan sykur, engin rotvarnarefni, engin litarefni, ilmefni og engin erfðabreytt efni.
Gott að setja útá grauta, þeytinga eða í drykki, berin hafa milt súrsætt bragð. Til inntöku má taka frá 3- 10 gr á dag, ef tekin eru 10 gr er betra að dreifa inntökunni yfir daginn.





