- Íslenska spírulínan:
- Spírulínan inniheldur b1, b2, b3, b6 og b12 , en þessi vitamin eru nauðsynleg hjálparefni fyrir efnaskipti, orku og þrek og huglæga einbeitingu. Þessi vítamín umbreyta næringarefnum í nothæfa orku, styðja við taugastarfsemi og hjálpa til við að draga úr þreytu.
- Náttúrulega myndað b12 vítamín (metýlkóbalamín) í spirulinu er lífvirkt form sem er mikilvægt fyrir myndun rauðra blóðkorna og súrefnisflutning, lykilatriði fyrir afkastagetu og endurheimt.
- Járn og magnesíum auka enn frekar þessi áhrif með því að styðja við súrefnisflutning, vöðvasamdrátt og jafnvægi rafvaka (electrolytes). Járn flytur súrefni til vöðva og fruma, en magnesíum stuðlar að stöðugri orkulosun og kemur í veg fyrir vöðva krampa við líkamlegt álag.
- Klórófyll, græna litarefnið í spírulinu, styrkir frumur og bindur súrefni í blóði. hjálpar til við að viðhalda basísku jafnvægi og styðja við endurheimt eftir æfingar. Það virkar samverkandi með karótínóíðum, breiðum hópi náttúrulegra andoxunarefna sem vernda gegn oxunarálagi og bólgum. Meðal þessara eru beta-karótín, lútín og zeaxantín, sérstaklega öflug andoxunarefni sem mynda náttúrulegt varnarkerfi fyrir húð, augu og starfsemi ónæmiskerfisins.
- Beta karótín styður við ónæmiskerfið og verndar frumur, er forveri a vítamíns hjálpar það til við að viðhalda heilbrigðri húð, slímhúð og sjón. Langtímaneysla tengist minni hættu á vítamínskorti, ljósöldrun húðar og oxunarskemmdum í frumum.
- Lútín og zeaxantín eru í miklu mæli í sjónhimnu og augnbotni augans og eru sterklega tengd minni hættu á aldurstengdri hrörnun í augnbotnum. Þau eru einnig talin styðja við hugræna getu og minni, þar sem þessi sömu karótínóíð safnast fyrir í heilavef og vernda taugafrumur gegn oxunarálagi.
- Spírulina inniheldur einnig nauðsynleg steinefni eins og kalsíum, kalíum og sink, sem stuðla að þreki, frumuviðgerðum og ónæmisvörn.
- Kalsíum stuðlar að heilbrigðri vöðvastarfsemi og beinstyrk. Kalíum styður við vökvajafnvægi og taugavirkni. Sink hjálpar m.a. við próteinmyndun og frumuendurnýjun.






