CB Raw Kakao duft gerjað með kókossykri

Hrákakóduft með kókosblómasykri frá býlum á Vestur-Bali sem eru sjálfbær og vinna samkvæmt „Permaculture“ ræktun, en það er búskaparaðferð sem leitast við að vinna með náttúrunni í stað þess að vinna á móti henni. Permaculture fellur undir vísindalega nálgun alþjóðlegra félagslegra hreyfinga, iðkunar og matvælakerfis sem kallast landbúnaðarvistfræði. 

Vörunúmer: kakao - z 100 Flokkar: ,

Súkkulaðiduft  sem er búið til úr dýrindis hrákakói með viðbættum kókosblómasykri beint frá Balí. Kókosblómasykur hefur marga kosti fram yfir venjulegan hreinsaðan sykur, hann er t.d. ríkur af steinefnum eins og sinki, magnesíum og járni.

Hrákakó er ríkt af steinefnum og jurtaefnum eins og:
  • magnesíum
  • sinki
  • flavoníðum
  • járni
  • Inniheldur teóbrómín, forvera hamingjuhormónsins serótóníns
  • Mjög góður trefjagjafi (100g kakóduft inniheldur yfir 100% af daglegri þörf)
  • Tilvalinn valkostur í staðinn fyrir kaffi
Notið 1 til 2 tsk í bolla með 65° heitu vatni eða heita mjólk að eigin vali.
Vörukarfa