CB Raw kakóduft gerjað 100gr

2.111 kr.

Hrákakó frá býlum á Vestur-Bali sem eru sjálfbær og vinna samkvæmt „Permaculture“ ræktun, en það er búskaparaðferð sem leitast við að vinna með náttúrunni í stað þess að vinna á móti henni. Permaculture fellur undir vísindalega nálgun alþjóðlegra félagslegra hreyfiga, iðkunar og matvælakerfis sem kallast landbúnaðarvistfræði. 

Ekki til á lager

Vörunúmer: kakao-100 Flokkar: ,

Caobali hrákakóduftið er 100% hreint, framleitt á Balí. Kakóbaunirnar  koma frá ýmsum bæjum sem hafa verið í eigu sömu fjölskyldna í margar kynslóðir. Ræktunin er upprunaleg og traust og gefur af sér fyrrsta flokks vöru, Ólíkt hefðbundnu drykkjarsúkkulaði inniheldur það ekki sykur og hefur lítið fituinnihald. Kakaóduftið er hægt að nota í ýmsan máta eins og í búðinga, bakkelsi, múslí, þeytinga og heimatilbúið  súkkulaði.

Hrákakó er ríkt af steinefnum og jurtaefnum eins og:
  • Magnesíum
  • Sinki
  • Flavoníðum
  • Járni
  • Inniheldur teóbrómín, forvera hamingjuhormónsins serótóníns
  • Mjög góður trefjagjafi (100g kakóduft inniheldur yfir 100% af daglegri þörf)
  • Tilvalið sem valkostur fyrir kaffi
Notið 1 til 2 tsk í bolla með 65° heitu vatni eða heita mjólk að eigin vali.
Vörukarfa