Hvítt te er talið hafa góð áhrif á húðina því það inniheldur efni sem varnar niðurbroti á kollageni, það inniheldur líka mikið af andoxunarefnum. Teið er ræktað á Indlandi við rætur Himalaya, fyrirtækið er rótgróið fjölskyldufyrirtæki í umhverfi sem er umlukið magnaðri villtri náttúru. Demeter lífræn ræktun leggur áherslu á að viðhalda jafnvægi á milli ræktunaraðferða og náttúrunnar ásamt heiðarlegum viðskiptaháttum fyrir alla sem að ræktununni koma.
Hvítt te inniheldur koffín, en bolli af hvítu tei inniheldur ca þrisvar sinnum minna koffín en kaffi bolli.





