Dropi þorskalýsi Spearmint 170ml

4.611 kr.

Dropi þorskalýsi er kaldunnið til að varðveita alla náttúrulega eiginleika olíunnar, einungis er notast við nýveiddan Atlantshafsþorsk (Gadus morhua). Engum gerviefnum eða viðbættum vítamínum er bætt við olíuna. Þorskalýsi af hreinustu gerð beint úr sjó. Hylkin eru gerð úr fisk gelatíni. Spearmint þykknið sem er notað til að bragðbæta er lífrænt.

Lagerstaða: Á lager

- +
Vörunúmer: 562046 Flokkar: , , ,

Hreinn íslenskur dropi

Dropi þorskalýsi er eingöngu kaldunnið til að varðveita alla náttúrulega eiginleika olíunnar. Lágt hitastig er notað allt framleiðsluferlið og fer hitinn aldrei yfir 42°C. Við þetta lága hitastig viðhaldast hrein, náttúruleg vítamín og næringarefni og því flokkast Dropi sem jómfrúarolía og hráfæði. Olían inniheldur hrein og náttúruleg vítamín A og D, ásamt Omega-3 og öðrum fitusýrum. Engum gerviefnum eða viðbættum vítamínum er bætt við olíuna.

Innihald: Þorskalýsi Ráðlagður dagskammtur/skammtastærð: 1 tsk (5ml)

% Dagskammtur*

  • Kaloríur 41

  • Fita 4.6 g

    7%

  • Mettuð fita 0.8 g

    4%

  • Kólesteról 23.7 mg

    8%

  • A vítamín (frá þorskalifur) 1126.6 mcg

    125%

  • D vítamín (frá þorskalifur) 13.3 mcg

    66%

  • Omega-3 fitusýrur 1228 mg

  • EPA (Eicosapentaenoic Acid)

    404 mg

  • DHA (Docosahexaenoic Acid)

    565 mg

Notkun: 1 teskeið (5ml) á dag. Ef þú ert barnshafandi, með barn á brjósti, með ofnæmi fyrir fiski eða þjáist af langvinnum veikindum mælum við með að þú fáir faglega ráðgjöf hjá viðeigandi heilbrigðisstarfsfólki. Varúð/Varist: Geymið þar sem börn ná ekki til. Innbyrðið ekki meira en ráðlagðan dagskammt. Fæðubótarefni ætti ekki að koma í staðinn fyrir fjölbreytt mataræði. Geymsla: Geymist í ísskáp fyrir langvarandi ferskleika. Geymist í 3 mánuði í ísskáp eftir opnun.
Vörukarfa