Það er ekki bara eldra fólk sem þarf að huga að beinheilsu sinni, talið er að beinmassi okkar byrji að rýrna mikið fyrr, jafnvel milli þrítugs og fertugs. Beinmassi kvenna eftir breytingarskeið rýrnar allt að 35%, fimm til sjö árum eftir tíðahvörfin. Það er því betra að byrja fyrr en seinna að huga að beinheilsunni og gera fyrirbyggjandi ráðstafanir.
Kalkið úr eggjaskurninni inniheldur náttúruleg flutningsprótín sem auka lífaðgengi og gera upptökuna á kalkinu allt að 20% betri en úr öðrum tegundum af kalsíum karbónati.




