Mercola serrapeptase ensími

9.225 kr.

Serrapeptase er mjög kröftugt ensím unnið úr silkiþræði silkiormsins og er ólíkt meltingarensímum sem eru tekin með mat til að hjálpa meltingunni að brjóta betur niður fæðuna. Serrapeptase er ekki ætlað að brjóta niður prótein úr fæðunni, heldur að brjóta niður og eyða lífvana vefja úrgangi (próteinúrgangi) sem safnast fyrir í líkamanum, myndar bólgur og hindrar eðlilegt blóðflæði.

Lagerstaða: Á lager

- +

Serrapeptase er mjög kröftugt ensím sem er tekið á milli mála eða rétt fyrir svefn til að styðja við heilbrigt blóðflæði og fyrir rétta virkni líkamsvefja, líffæra og ónæmiskerfis.

Líkaminn framleiðir þessa tegund af ensímum náttúrulega en þættir eins og öldrun, lélegt og einhæft matarræði, reykingar og erfðir draga úr þessar framleiðslu. Það fylgir eðlilegu öldrunarferli að styrkur og framleiðsla ensíma minnkar.

Ensím eins og serrapeptase sem brýtur niður lífvana prótein úrgangsefni í líkamanum er talið styðja við:

  • Eðlileg viðbrögð við bólgum.
  • Heilbriðgða ónæmisvirkni.
  • Heilbrigði ennis/kinnhola og öndunarfæra.
  • Vellíðan og hreifanleika í liðamótum.
  • Heilbrigði hjarta/æðakerfis og viðheldur heilbrigðum blóðþrýstingi.
  • Heilbrigðan svefn og gefa orku.

Serrapeptase Enzymes formúlan inniheldur bæði serrapeptase og jarðvegsbakteríu úr Bacillus subtillis, en sú baktería er líka próteinsundrandi (lífvana prótein) og vinnur samverkandi með serrapeptase.

 

Fullorðnir, 1 hylki einu sinni á dag, má taka tvisvar á dag. Hylkin eru magasýruþolin og leysast upp í þörmunum.
Vörukarfa