Kröftug og krydduð eplaediks blanda með móður sem inniheldur engiferþykkni, túrmerikþykkni, hunang og örlítið af habanero chillidufti.
Eplaedik á sér sögu aftur til Hippókratesr sem er kallaður faðir læknisfræðinnar, en hann ráðlagði sjúklingum sínum að drekka eplaedik blandað með hunangi. Á seinni árum hafa verið gerðar rannsóknir á eplaediki og hafa rannsóknir sýnt frammá að ediksýra og önnur innihaldsefni eplaediks geta haft eftirfarandi áhrif:
• Stutt við efnaskipta starfsemi líkamans og getur hugsanlega vakið upp erfðavísa (gen) sem gefa merki um minni fitusöfnun.
• Bætt meltinguna með því að auka náttúrulegar magasýrur.
• Dregið úr kolvetnamagni sem fer útí blóðið með því að hægja á upptöku kolvetna.
• Hjálpað til við að koma jafnvægi á sýrustig líkamans.
• Hjálpað sogæðakerfinu að halda jafnvægi og losa líkamsvökva og stuðla að hreinsun.
• Hjálpar vöðvum að endurheimta glúkósa (fjölsykrur) eftir áreynslu eða æfingar.


