Úr sveit – Skjöldur hvítlaukssalt

2.700 kr.

Hvítlaukssaltið er framleitt úr íslenskum hvítlauk sem er ræktaður að Neðri Brekku í Dalabyggð og sjávarflögusalti frá Norðursalti á Reykhólum.
Fyrirtækið hefur öðlast framleiðsluleyfi frá Heibrigðiseftirliti Reykjavíkur og er varan framleidd og pökkuð í Matarsmiðju Matís. Gerð var örveiru og gerlarannsókn á vörunni hjá Matís og kom í ljós að um hreina afurð er að ræða

Lagerstaða: Á lager

- +
Vörunúmer: 019141 Flokkar: ,

Hjónin Þórunn MJH Ólafsdóttir og Haraldur Guðjónsson stofnuðu fyrirtæki í kringum hvítlauksræktun
sem þau eru með í landi Neðri Brekku, Dalabyggð. Þetta er skiki sem heitir Skjöldur og hefur nafnið fylgt
þessum skika frá ómunatíð, þannig hér er um örnefni að ræða. Hvítlauksræktunin gengur undir nafninu
Dalahvítlaukur og er mynd að vörumerkinu hér að ofan.
Þórunn hefur ræktað kartöflur og annað grænmeti í mörg ár á þessu landi með góðum árangri.
Hvítlauksræktunin var skemmtilegt áhugamál til að byrja með en þegar hún fann munin á íslenskum
hvítlauk og þeim erlenda var það ekki spurning hvað átti að rækta.
Þau erum með nokkrar tegundir af hvítlauk, “soft neck” sem er svokallaður mjúkhálsa laukur og er
endingar tími hans upp í 12 mánuðir í geymslu við góðar aðstæður og “hard neck”, harðhálsa laukur, en
geymslutími hans er 6-8 mámuðir.
Mjúkhálsalaukar eru meira ræktaðir þar sem er ívið hlýrra en hér, en með góðu skjóli og góðri
aðhlynningu vex hann ágætlega hér.
Harðhálsalaukar henta betur ræktun á norðlægari slóðum.
Innan þessara tegunda eru margar undirtegundir með mismunandi bragð og styrkleika.
Hvítlaukurinn þolir illa samkeppni við illgrest, þolir illa mikla bleytu og mikinn vind og er þurftarfrekur á
góða næringu.
Hjónin stunda það sem kallast “No dig/No till” einnig með svokölluðum þekjugróðri eða “cover crop”.
Það er að snúa ekki jarðveginum nema það sé alger nauðsyn, skilja ekki jarðveginn beran og nota
fjölbreytta tegundir af einærum jurtum sem sáð er strax og hvitlaukurinn er tekinn upp.
Þekjugróðurinn sér um að neðanjarðarbúfénaðurinn í moldinni fái næringu, styður að aukningu ýmissa
baktería og örvera, sem sjá um að sækja það sem plantan biður um í samstarfi við rótarsveppaþræðina
(mycelium).
Allir göngustígar í kringum beðin eru með trjákurli sem er góður fyrir sveppina og annað lífríki í
jarðveginum, og dregur úr illgresi
Notaður er eingöngu lífrænn áburður og til stendur að sækja um lífræna vottun.

Sjávarsssalt og 25% íslenskur hvítlaukur
Notist eftir smekk við matargerð
Vörukarfa