PV Essential Lemongrass 5ml
2.803 kr.
Sítrónugras er fjölært ilmandi gras sem líkist sefi og er ræktað í Asíu og Suður-Ameríku. Það getur orðið allt að þrír metrar á hæð og vex í þéttum þyrpingum. Stíf og seflík blöðin hafa sterkan sítrónuilm og eru gjarnan notuð fersk í asískri og víetnamskri matargerð, en ilmkjarnaolía úr grasinu er notuð í náttúrulækningum og við ilmvatnsgerð.
Lagerstaða: Á lager
Innihaldsefni:
Sítrónugrasolía*, sítral**, geraníól**, geranýl-asetat**, límonen**, beta-karýófýllen**, línalól**, sítrónellól**
* úr vottaðri lífrænni ræktun
** náttúrulegir þættir ilmkjarnaolíunnar
Notkun: Þreyta og streita, skyndihjálparsett fyrir heimili og ferðalög, skordýrafæla.
Notkun fyrir ilmmeðferðir: Hámark 7 dropar í 50 ml af lífrænni sætmöndluolíu frá PRIMAVERA.



