Bronners lífræn sápa – 59ml sítróna

620 kr.

Gerið sjálfum ykkur og móður jörð greiða með því að skipta yfir í lífrænu, umhverfisvænu galdrasápurnar frá Dr.Bronner

  • Vottuð lífræn og fair trade
  • Algjörlega umhverfisvæn og niðurbrjótanleg
  • 100% Post-Consumer (PCR) endurunnið plast í flöskunum og pappír í miðunum
  • Fjölbreyttir notkunarmöguleikar, eina sápan sem þú þarft!
  • Í hár-, sturtu- og handsápa – líka í andlitið og hentar vel til að fjarlægja farða
  • Í þvottavélina, uppvaskið og heimilisþrifin
  • Drjúg og freyðir vel

Lagerstaða: Á lager

Dr.Bronner´s trúa því að félagsleg ábyrgð fyrirtækja sé afar mikilvæg. Fyrirtækið heldur fast í framsækin gildi á öllum stigum framleiðslunnar. Þetta er fjölskyldufyrirtæki sem lítur á alla sína samstarfsaðila sem hluta af fjölskyldunni. Allir innan fyrirtækisins eru metnir að verðleikum og fá bæði sanngjörn laun og ýmis fríðinidi.
Launastefnan er einstök en hún er sú að þeir sem fá hæst laun innan fyrirtækisins fá aldrei meira en fimm sinnum hærri laun en lægst launaða staðan. Starfsmenn fá lífeyrisreikning, bónusa og sjúkdómatryggingu fyrir bæði sig og fjölskyldu sína. Starfsmenn eru hvattir til að auka sífellt við þekkingu sína og reynt er að búa öllum heilbrigt og öruggt vinnuumhverfi.
Allur hagnaður sem fer ekki í rekstur fyrirtækisins er notaður í góðgerðarstarf og ýmis baráttuverkefni í stað þess að búa til auðæfi fyrir stjórnendur og eigendur.

Alhliða sápa, unnin úr lífrænum olíum án allra kemískra efna Hentar börnum, fólki með viðkvæma húð og öllum hinum Eina sápan sem þú þarft fyrir alla fjölskylduna:
  • Í hárið
  • Í andlitið – fjarlægir farða t.d. vel
  • Á allan líkamann
  • Í baðið eða fótabaðið
  • Til raksturs
  • Á gæludýrin
Það er meira að segja hægt að tannbursta sig með sápunni, svo hrein er hún! Baby mild eða lavender er best fyrir börn og fólk með exem eða mjög viðkvæma húð Það er ekki bara hægt að þrífa alla fjölskylduna með Dr.Bronner´s heldur allt heimilið líka!
  • Í þvottavélina
  • Í uppþvottinn
  • Á gólf, glugga, veggi, flísar og önnur yfirborð
  • Í Eldhúsþrifin
  • Til að skola ávexti og grænmeti
  • Á baðherbergið
Hrein, lífræn sápa sem virkar!
Vörukarfa