Klínískar rannsóknir
Liðaró er fyrsta liðbætiefnið á markaði sem sameinar öflug náttúruefnin: AprésFlex, Q-actin og kúrkúmínóíða. Að baki hvers náttúruefnis liggur einstaklega sterkur klínískur bakgrunnur og verður stiklað á stóru hér að neðan:
- AprèsFlex® (Boswellia serrata útdráttur)
AprèsFlex er einkaleyfisvarinn og endurbættur útdráttur úr indversku reykelsistré (e. frankincense) sem hindrar bólguhvetjandi ensím á borð við 5-LOX.1
- Verkir og hreyfigeta: Allt að 70% minni verkir og aukin hreyfigeta hjá einstaklingum með slitgigt.
- Hraðvirkt: Rannsóknir sýna fram á marktæka minnkun á liðverkjum og óþægindum strax innan 5 daga við lágan skammt (100 mg á dag).
- Verndar brjósk: Langtímarannsóknir og segulómun (MRI) sýna að AprèsFlex dregur úr bólgu og niðurbroti brjósks. Ennig benda niðurstöður segulómunar til þess að ástand brjósks hafi batnað og liðbilið sömuleiðis.
- Q-actin® (Gúrkuútdráttur)
Q-actin er náttúrulegur útdráttur úr gúrku (Cucumis sativus) sem inniheldur virka efnið ido-BR1, sem dregur úr bólgumiðlum á borð við TNF-α.
- Verkir og hreyfigeta: Rannsóknir staðfesta allt að 32% bót á liðstarfsemi samkvæmt WOMAC-skalanum og aukinn sveigjanleika í daglegum athöfnum.
- Betri árangur en glúkósamín og kondróitín: Í 6 mánaða klínískri rannsókn á fólki með slitgigt kom í ljós að aðeins 20 mg skammtur af Q-actin á dag skilaði marktækt betri árangri við að minnka verki og auka hreyfanleika en stórir skammtar af glúkósamíni og kondróítíni.
- Fingrafimi: Bætir samhæfingu og hreyfigetu í fingrum. Hreyfifærni var metin með 9HPT-prófi, sem er viðurkennd aðferð til að mæla fingrafimi.
- Kúrkúmínóíðar (Túrmerikútdráttur)
Hágæða, staðlaður útdráttur sem inniheldur 95% af kúrkúmínóíðum, sem eru þekktustu náttúrulegu bólgueyðandi og andoxunarefnin úr túrmerikrótinni.
- Bólgur: Hefur öflug bólgueyðandi og andoxandi áhrif.
- Liðgigt og slitgigt: Rannsóknir sýna að kúrkúmín getur dregið úr bólgu og unnið á klínískum einkennum hjá sjúklingum með ýmsa gigtarsjúkdóma.
- Betri upptaka: Liðaró inniheldur píperín sem eykur upptöku og verkun kúrkúmíns.
Því má segja að Liðaró er ný kynslóð liðbætiefni. Með samsetningu þessara þriggja efna fæst hraðari og öflugri virkni en þekkist fyrir önnur liðbætiefni. Liðaró vinnur á áhrifaríkan hátt gegn liðverkjum, stirðleika, og bólgu með því að vernda brjósk og draga úr bólguvirkni.






