TVÆR TEGUNDIR AF MAGNESIUM ÁSAMT VÍTAMÍNUM OG STEINEFNUM.
Magnesíum er til í mörgum formum og hvert form nýtist á mismunandi hátt í vefjum líkamans og í lífefnafræðilegum ferlum. Medis Magnesium-Complex sameinar tvær gerðir af magnesíum sem báðar hafa gott aðgengi í líkamanum.
Magnesíummalat er bundið eplasýru, styður við orkuframleiðslu hvatbera, þrek og endurheimt vöða..
Magnesíumglýsínat er miltt fyrir magann, stuðlar að ró og styður við taugakerfið og bætir svefngæði.
Hvert hylki inniheldur 44 mg af frumefninu magnesíum sem nýtist líkamanum vel, jafngildir 12% af ráðlögðum dagskammti.
SAMVERKANDI FORMÚLA
Magnesíum eitt og sér er mikilvægt, en áhrif þess styrkjast þegar það er notað ásamt réttum samverkandi efnum.
C-vítamín (úr Acerola, tyttuberjum og múltuberjum)
Verndar magnesíum gegn oxunarálagi og styður við bandvefi þar sem magnesíum er virkt.
E-vítamín (allar 8 tegundir)
Inniheldur öll tókóferól og tókótríenól, sem vinna saman með magnesíum að því að vernda vöðva- og taugafrumur gegn skemmdum af völdum sindurefna.
B6-vítamín (Pýridoxal-5-fosfat)
Eykur hlutverk magnesíums í efnaskiptum og hormónajafnvægi, og bætir upptöku bæði magnesíums og króms.
Króm (Píkólínat og króm GTF)
Styður við blóðsykursstjórnun og efnaskipti, eykur skilvirkni magnesíums í kolvetna og orkuferlum.
D3 vítamín (Kólekalsíferól úr fléttu)
Vinnur með magnesíum við að styrkja bein, vöðvastarfsemi og ónæmiskerfi og stuðlar að upptöku kalsíums og magnesíums.
Bór (Sítrat, Aspartat, Glýsínat)
Stuðlar að jafnvægi í steinefna búskap líkamans og styður við hlutverk magnesíums í efnaskiptum, hormónastjórnun og beinþéttni.


Magnesíum (bisglycinat, malat), C-vítamín (úr Acerola, tyttuberjum og múltuberjum), E-vítamín (allar 8 tegundir), B6-vítamín (pýridoxal-5-fosfat), Króm (píkólínat, króm GTF), D3-vítamín (kólekalsíferól úr skófum), Bór (sítrat, aspartat, glýsínat)


