Jörth Abdom

15.990 kr.

Abdom bætiefnið styrkir meltingarveginn, eflir þarmaflóruna og kemur jafnvægi á
meltinguna. Það er búið til úr hágæða hráefnum sem græða innan frá, eitt skref í
einu. Heilbrigður meltingarvegur ásamt öflugri meltingarflóru er grunnurinn að góðri heilsu, bæði líkamlegri og andlegri.

Ekki til á lager

Vörunúmer: 031259 Flokkar: , , , ,

Abdom 1.0 er háþróað bætiefni úr hágæða náttúrulegum hráefnum sem eflir þarmaflóruna, bætir meltinguna og hefur græðandi áhrif á meltingarveginn. Abdom inniheldur einstaka, sérhannaða blöndu af 19 míkróhjúpuðum góðgerlum og gerjaðri íslenskri broddmjólk.

Í hverjum skammti af Abdom 1.0 eru 50 milljarðar míkróhjúpaðra góðgerla (CFU), sem gerir það að einu öflugasta bætiefni sem völ er á. Auk þess tryggir míkróhjúpun gerlanna að sérhæfð virkni hvers og eins nýtist á staðbundinn hátt í meltingarveginum.

Þessari einstöku blöndu 19 míkróhjúpaðra góðgerla er blandað saman við frostþurrkaða gerjaða broddmjólk sem er stútfull af mikilvægum efnum sem hafa græðandi áhrif á meltingarveginn.

Í upphafi er broddmjólkin gerilsneydd við lægsta mögulega hitastig til að varðveita eiginleika hennar sem best, áður en sérhannaðri gerlablöndu er bætt saman við hana og látið gerjast. Að því ferli loknu er hún frostþurrkuð til að engir eiginleikar og næringarefni tapist. Þannig tryggjum við hámarksvirkni vörunnar við að efla þarmaflóruna, bæta meltingu og græða meltingarveginn.

Abdom 1.0 inniheldur aðeins náttúruleg hráefni. Engar erfðabreytingar, soja, sýklalyf, fylliefni eða aukaefni.

Abdom (1-2 mánaða skammtur) kostar kr. 15.990.  Ef Abdom er keypt í áskrift er veittur 15% afsláttur og kostar þá skammturinn kr. 13.600.

Microencapsulated probiotic blend: CFU*

Bifidobocterium adolescentis: 4 billion
Bifidobocterium bifidum: 2 billion
Bifidobocterium breve: 2 billion
Bifidobacterium infantis: 2 billion
Bifidobocterium lactis: 4 billion
Bifidobacterium longum: 4 billion
Enterococcus faecium: 1 billion
Lacticaseibacillus casel: 2 billion
Lacticaseibacillus paracasei subsp. paracasei: 1 billion
Lacticoseibacillus rhamnosus: 4 billion
Lactiplantibacillus plantarum: 4 billion
Lactobacillus acidophilus: 4 billion
Lactobacillus delbrueckil subsp. bulgaricus: 4 billion
Lactobacillus helveticus: 4 billion
Lactococcus lactis subsp. lactis: 1 billion
Levilactobacillus brevis: 2 billion
Ligilactobacillus salivarius: 2 billion
Saccharomyces boulardii: 1 billion
Streptococcus thermophilus: 2 billion

Total CFU: 50 billion
*colony forming units
Það er best að taka inn tvö hylki að morgni, hvort heldur á fastandi maga eða með mat. Hylkin er einnig hægt að taka inn hvenær sem er dagsins, með mat eða á tóman maga. Gott er að drekka eitt glas af vatni með. Hylkin er hægt að opna og blanda innihaldi í drykk eða mat.
Vörukarfa