Moya Kukicha lífrænt te 60gr

2.239 kr.

Lífrænt japanskt grænt te úr greinum og stilkum plöntunnar, það er fíngert og sætt, með örlitlum keim af hnetum og umami.

Ekki til á lager

Eiginleikar Kukicha
Öfugt við önnur græn te þá inniheldur Kukicha mikið magn L-theaníns og einstaklega lítið af koffíni. Ástæðan er sú, að ljóstillífun, sem breytir L-theaníni í katekín, á sér ekki stað í stilkunum. Það hentar því vel börnum, barnshafandi konum og öldruðum og er tilvalið te til að drekka á kvöldin.
En, ásamt öðrum japönskum grænum teum er það engu að síður rík uppspretta af katekínum og andoxunarefnum. Að drekka kukicha bætir meltingu og hjálpar til við að hægja á öldrun, hreinsar eiturefni, getur lækkað slæma kólesterólið, viðheldur eðlilegu blóðsykursgildi, stuðlar að heilbrigðum tönnum og tannholdi og bætir jafnvel andlega líðan. Lauf þess innihalda auðupptakanlegt C-vítamín, beta-karótín, fólínsýru, kalíum, kalsíum og fosfór.

Kukicha á rætur sínar að rekja til Uji-héraðs í Japan. Þar brugguðu bændur sitt eigið einstaka te — kukicha — úr eftirstandandi greinum og stilkum eftir að hafa selt verðmætustu laufin og blómknappana.
Á japönsku þýðir „kuki“ kvistur og „cha“ þýðir te. Moya Kukicha kemur frá lífrænni ræktun á eyjunni Kyushu og er létt ristað, sem gefur því sterkara bragð. Kukicha hentar mjög vel til að nota í kaldbruggað te.

100% lífrænt japanskt grænt Kukicha te. Öll te frá Moya er með lífræna laufblaðið sem er vottunarmerki ESB og hefur einnig fengið Tún vottun.
Að laga Kukicha te:  setjið  2-3 g í 200 ml af vatni, hitastig vatns 70-80°C. Látið telaufin liggja í 2-3 mínútur.  Hægt er að nota sömu laufin í fjögur skipti.
Vörukarfa